Lýsing
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Björt og góð 3ja herbergja íbúð á 1. hæð við Kjarrhólma 10 í Kópavogi. Íbúðin er skráð 84,7 m2., þar af íbúð 75,3 m2 og geymsla 9,4 m2. Íbúðin skiptist í forstofu/hol, stofu, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús. Sérgeymsla er í sameign í kjallara. Glæsilegt útsýni er yfir Fossvogsdal og til Esju. Frábær staðsetning þar sem stutt er í skóla, leikskóla, íþróttasvæði og alla helstu þjónustu. Fallegar gönguleiðir og útivistarsvæði í Fossvogi eru steinsnar frá eigninni.
** Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax **
Nánari lýsing:
Forstofa/hol er með parketi á gólfi og góðum forstofuskáp.
Stofa er björt og rúmgóð með parketi á gólfi og fallegu útsýni.
Eldhús er með flísum á gólfi, góðri innréttingu með bakaraofni, helluborði og viftu. Gert er ráð fyrir ísskáp og uppþvottavél í innréttingu. Borðkrókur er við glugga með fallegu útsýni.
Svefnherbergi 1 (hjónaherbergi) er með parketi á gólfi, stórum fataskáp og útgengi á suðursvalir.
Svefnherbergi 2 er með parketi á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum, innréttingu, handlaug, salerni og baðkari með sturtuaðstöðu.
Þvottahús er innan íbúðar með máluðu gólfi og hillum.
Sérgeymsla er í sameign í kjallara 9,4 m2.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla í kjallara.
Sameiginlegt þurrkherbergi er einnig í kjallara.
Á sameiginlegu bílastæði er búið að setja upp hleðslustöðvar frá ON.
Fyrirhugað fasteignamat fyrir árið 2026 er kr. 62.050.000.
Verð kr. 62.900.000
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.