Opið hús: Bergþórugata 15, 101 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 00 01. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 9. september 2025 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.
Lýsing
Nánari lýsing eignar:
Inngangur: Inngangur er úr garðinum á bak við húsið, gengið inn í port frá Vitastíg. Einnig er inngangur götumegin.
Anddyri: Gengið er inn í forstofu og svo opið rúmgott rými þar sem eldhús og stofa flæða saman. Harðparket á gólfi.
Eldhús: Eldhúsið er með fallegri hvítri innréttingu með viðarborðplötu, efri og neðri skápum og innbyggðum ísskáp.
Stofa: Stofan er björt með harðparketi á gólfi.
Svefnherbergi: Rúmgott og bjart herbergi með fataskáp. Harðparket á gólfi.
Baðherbergi: Baðherbergið og sturtuklefi er flísalagt í hólf og gólf.
Þvottahús: Sameiginlegt þvottahús er á hæðinni og er hver íbúð með sína eigin vél.
Geymsla: Tvær litlar geymslur fylgja eigninni (önnur nýtt sem fatahengi), birtar stærðir 1,4 fm og 1,6 fm skv. HMS.
Það eru þrjár íbúðir í húsinu. Engin starfsemi er í húsfélagi og engin húsgjöld innheimt.
Þessi eign hentar mjög vel fyrir fyrstu kaupendur og er örstutt í menningu miðbæjarins, verslanir, skóla og alla þjónustu. Allar nánari upplýsingar veitir Hallgrímur Hólmsteinsson, löggiltur fasteignasali í síma 896-6020, hallgrimur@trausti.is
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.