Lýsing
Miklaborg kynnir: Falleg 3ja herbergja íbúð á 4. hæð með góðu útsýni, stórri stofu og yfirbyggðum svölum. Stærð íbúðar er 98,9 fm og skiptist hún í rúmgott dagrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, tvö herbergi, baðherbergi og þvottahús. Möguleiki væri að bæta við litlu herbergi innst í stofu. Vel umgengin eign í góðu lyftuhúsi sem byggt er af Byggingarfélagi Gylfa og Gunnars. Laus við kaupsamning.
Komið inn í forstofu með fataskápum. Innst er rúmgott og bjart dagrými með stofum og eldhúsi, fallegt útsýni er frá rýminu. Eldhús með góðum innréttingum og eyjuborði. Frá eldhúsi er útgengi út á yfirbyggðar suðursvalir með flísum. Tvö góð svefnherbergi, bæði með fataskápum. Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf, góð innrétting, upphengt salerni og sturtuklefi. Þvottahús með flísum á gólfi og vinnuborði með vaski. Megin gólfefni er parket en votrými eru með flísum. Sér geymsla 7,2 fm fylgir með í kjallara. Sameign er sérlega snyrtileg en sameiginleg hjólageymsla er við inngang í húsið. Einnig er mjög gott bílaplan með fjölda bílastæða við húsið. Handan götunnar er þjónustukjarni með meðal annars matvöruverslun, stutt er einnig í sund í Salalaug og Salaskóla.
Mjög snyrtileg eign á frábærum stað í Salahverfi.
Nánari upplýsingar veitir Svan Gunnar Guðlaugsson löggiltur fasteignasali í síma 697 9300 eða svan@miklaborg.is