Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 2005
202,5 m²
5 herb.
2 baðherb.
4 svefnh.
Þvottahús
Sérinngangur
Lýsing
ÁRBORGIR SELFOSSI S 482 4800 kynna;
Mjög snyrtilegt og bjart einbýlishús í Fosslandinu á Selfossi.
Húsið er byggt úr forsteyptum einingum, er steinað að utan og aluzink er á þaki. Heildarstærð hússins er 202,5 m² og er sambyggður bílskúr 31,5 m² þar af. Húsið er vel skipulagt og stendur á 820 m² fullfrágenginni eignarlóð með stórum garði, fallegri verönd og skjólveggjum. Hellulagt er hringinn í kringum húsið og frágangur er til fyrirmyndar. Innkeyrsla er hellulögð, upphituð og er einnig stæði fyrir framan hús.
Nánari lýsing:
Forstofan er rúmgóð og björt, flísar eru á gólfi og þar er stór fataskápur. Innangent er í bílskúr úr forstofu. Úr forstofu er hurð út á verönd í bakgarðinn.
Baðherbergi er flísalagt bæði gólf og veggir í sturtu, þar er góð innrétting og gólfsturta.
Gestasnyrting er flísalögð og þar er lítil innrétting.
Hjónaherbergi er rúmgott, parket er á gólfi og þar eru góðir fataskápar.
Barnaherbergin eru 3, öll með parketi á gólfi og er fataskápur í einu þeirra.
Stofa, borðstofa og sjónvarpshol eru í opnu rými ásamt eldhúsi þar sem er aukin lofthæð sem gefur rýminu fallegt yfirbragð. Vandað nýtt harðparket frá Parka er á gólfi.
Eldhúsið er parketlagt, vel búið Siemens tækjum, með stórri innréttingu og eyju, tvöföldum ísskáp, innbyggðum örbylgjuofni og innbyggðri lýsingu í skápum. Úr borðstofu er útgengt í bjartann sólskála.
Sólskálinn er með hita í gólfi sem eru flísalagt. Útgengt er á sólpall úr sólskála.
Þvottahús er inn af bílskúr og eru flísar á gólfi.
Bílskúr er fullbúinn og flísalagður, stórt geymsluloft er í enda hans.
Stór sólpallur með skjólveggjum og nýjum heitum potti er á baklóð og við pallinn er geymsluskúr með hita og rafmagni.
Lóðin er eignarlóð, fullfrágengin. öll gróin og snyrtileg.
Í heildina er um að ræða einstaklega gott, vel skipulagt og snyrtilegt einbýli á frábærum stað þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, verslanir og skóla.
Nánari upplýsingar veitir Þorsteinn Magnússon löggiltur fasteignasali í síma 894-2045 eða steini@arborgir.is eða á skrifstofu Árborga, arborgir@arborgir.is eðaí síma síma 482-4800.

Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
20. jún. 2023
90.300.000 kr.
102.000.000 kr.
202.5 m²
503.704 kr.
14. mar. 2019
54.550.000 kr.
62.500.000 kr.
202.5 m²
308.642 kr.
21. jan. 2011
26.800.000 kr.
26.100.000 kr.
183 m²
142.623 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025