Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1990
159,4 m²
4 herb.
2 baðherb.
2 svefnh.
Þvottahús
Bílskúr
Útsýni
Sameiginl. inngangur
Lyfta
Lýsing
Eignamiðlun kynnir:
Skúlagata 40A, 159.4 fm 3 herbergja íbúð merkt 05-02. Útsýnisíbúð á tveimur hæðum í fallegu og frábærlega vel staðsettu lyftuhúsi í "Skuggahverfinu" með bílskúr. Einstaklega glæsilegt sjávarútsýni og fjallasýn m.a. Esjan, Akrafjall og fl. Tvennar svalir. Íbúðin er háð þeim kvöðum að kaupandi þarf að vera 60 ára eða eldri. Nýleg eldhúsinnrétting frá HTH með innbyggðum stórum ísskáp og frystiskáp. Þá var þak endurnýjað 2023 og settir nýjir þakgluggar í sólskála og hjónaherbergi. Virkilega falleg og skemmileg íbúð á efstu hæð í þessu vinsæla húsi. Mögulegt að leigja eða kaupa auka stæði í bílastæðahúsi. Næg bílastæði á lóð fyrir gesti.Nánari upplýsingar veitir Gunnar Bergmann Jónsson í síma 839-1600 eða gunnarbergmann@eignamidlun.is BÓKIÐ SKOÐUN
Eignin er skráð sem hér segir hjá Þjóðskrá: Fastanr. 200-3535, nánar tiltekið eign merkt 05-02, birt heildarstærð 159.4 fm. Þar af er íbúðin skráðir 138,8 fm og 20,6 fm bílskúr. Eignin skiptist í: Forstofu, 2 svefnherbergi, 2 stofur, eldhús, sólskáli og 2 baðherbergi.
Nánari lýsing eignarinnar:
1 hæð: Komið er inn í flísalagða forstofu með skáp og fatahengi. Á vinstri hönd úr forstofu er geymsla og þvottaherbergi. Úr forstofu er gengið í parketlagt hol. Á vinstri hönd er gestabaðherbergi með nýlegum flísum á gólfi og ljósum flísum á veggjum. Á vinstri hönd úr holi er gengið inn í herbergi/stofu sem er opið inn í alrými. Á hægri hönd er gengið inn samliggjandi borðstofu og eldhús. Eldhús með nýlegri HTH innréttingu með stórum innbyggðum ísskáp og stórum innbyggðum frystiskáp. Þá er einnig ný XL uppþvottavél í innréttingu. Útgengt er á yfirbyggðar svalir sem snúa til vesturs úr borðstofu. Fallegt útsýni úr eldhúsgluggum og af svölum.
2 hæð: Gengið er upp teppalagðar tröppur úr holi. Komið er upp í stóra, opna og bjarta stofu með einstöku útsýni yfir faxaflóann. Úr stofunni er gengið inn í rúmgott svefnherbergi með góðum skápum og sérbaðherbergi með baðkari, nýjar flísar á gólfi og ljósar flísar á veggjum. Við hinn enda stofunar er yfirbyggður, flísalagður sólskáli, úr honum er gengið út á svalir sem snúa til norðurs og eru með glæsilegt útsýni yfir Faxaflóann. Parket er á gólfum að undanskyldu baðherbergi og sólstofu.
20,6 fm bílskúr fylgir eigninni og er keyrt inn í hann frá Skúlagötu. Einnig er hægt að leiga eða kaupa bílastæði í lokuðum bílakjallara.
Sameign íbúa: Á jarðhæð Skúlagötu 40 er stór og rúmgóður samkomusalur. Í kjallara Skúlagötu 40 er aðstaða með heitum potti, sauna klefa, nokkrum líkamsræktartækjum, tveimur sturtum tveimur búningsklefum sem íbúar hafa aðgang að. Sameiginleg bílastæði norðan- og sunnanmegin við húsið og inngangar í húsið. Eitt húsfélag er rekið yrir Skúlagötu 40, 40a og 40b og er í þjónustu hjá Eignaumsjón.
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
14. nóv. 2018
58.300.000 kr.
62.900.000 kr.
159.4 m²
394.605 kr.
1. júl. 2012
32.800.000 kr.
32.000.000 kr.
159.4 m²
200.753 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025