Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hannes Steindórsson
Bogi Molby Pétursson
Guðrún Antonsdóttir
Heimir Hallgrímsson
Hrafnkell P. H. Pálmason
Viðar Marinósson
Elías Haraldsson
Kristján Þórir Hauksson
Albert Bjarni Úlfarsson
Ragnar Þorsteinsson
Þórey Ólafsdóttir
Vista
svg

403

svg

296  Skoðendur

svg

Skráð  18. sep. 2025

fjölbýlishús

Rofabær 31

110 Reykjavík

79.900.000 kr.

702.109 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2045002

Fasteignamat

64.450.000 kr.

Brunabótamat

52.300.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1967
svg
113,8 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Sameiginl. inngangur

Lýsing

Nýtt á skrá! Rofabær 31 í Reykjavík - Bókið skoðun.

Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynnir virkilega glæsilega, bjarta og vel skipulagða 113,8 fermetra 4ra herbergja endaíbúð (gluggar á þrjá vegu) á 2. hæð með svölum til suðurs við Rofabæ 31 í Reykjavík. Íbúðin hefur verið endurnýjuð mikið á afar smekklegan máta á undanförnum fimm árum. Má þar nefna eldhús, baðherbergi, gólfefni, innihurðir, ásamt skápum í forstofu og herbergjum. Auk þess er búið að endurnýja rofa og tengla íbúðar ásamt því að skipta úr rafmagnstöflu íbúðar (einnig sér tafla fyrir eldhús). Þvottaaðstaða er innan íbúðar ásamt sameiginlegu þvottaherbergi á jarðhæð hússins. Þá er rúmgóð sameiginleg hjóla- og vagnageymsla á jarðhæð ásamt 4,9 fermetra sérgeymslu með glugga.

Um er að ræða virkilega sjarmerandi fjölbýli, byggt árið 1967, sem hefur fengið gott viðhald á undanförnum árum. M.a. var húsið múrviðgert og málað árið 2022. Einnig er búið að skipta um alla glugga í húsinu sem voru komnir á tíma og eru allir gluggar í íbúð nýjir nema einn. Þá er búið að endurnýja sameiginlegt bílaplan (jarðvegsskipt og malbikað) ásamt því að leggja ídráttarrör fyrir rafhleðslustöðvar (á eftir að setja upp stöðvar). Auk þess var stigagangur málaður árið 2025 og bakgarður tekinn í gegn.

Staðsetning eignarinnar er afar góð á eftirsóknarverðum stað við Hraunbæ í Reykjavík þaðan sem stutt er í grunnskóla (Árbæjarskóla), leikskóla, íþróttasvæði og sundlaug. Verslanir í næsta nágrenni ásamt glæsilegum hjóla- og gönguleiðum í nágrenni við náttúruna og Elliðaárdalinn.

Nánari lýsing:

Forstofa: Með vinylparketi á gólfi og skápum.
Hol: Er rúmgott með vinylparketi á gólfi og tengist stofu íbúðar.
Stofa: Er rúmgóð og björt með vinylparketi á gólfi. Stofa rúmar vel setustofu og borðstofu. Gluggar til austurs og suðurs. Útgengi á svalir.
Svalir: Snúa til suðurs inn í bakgarð hússins.
Eldhús: Er mjög rúmgott og bjart með vinylparketi á gólfi. Afar falleg eldhúsinnrétting með miklu skápaplássi og stórri eyju í miðjunni. Innbyggður kæliskápur með frysti, innbyggð uppþvottavél og spansuðu helluborð í eyju. 
Svefngangur: Með vinylparketi á gólfi.
Baðherbergi: Með flísum á gólfi og veggjum. Rúmgóð flísalögð sturta með glerþili og handklæðaofni. Falleg innrétting við vask, upphengt salerni og opnanlegur gluggi til austurs.
Hjónaherbergi: Með vinylparketi á gólfi, góðum skápum og glugga til norðurs.
Svefnherbergi II: Með vinylparketi á gólfi, skáp og glugga til norðurs.
Svefnherbergi III: Með vinylparketi á gólfi, skáp og glugga til norðurs.

Geymsla: Er staðsett í kjallara og er 4,9 fermetrar að stærð, með máluðu gólfi og glugga.
Hjóla- og vagnageymsla: Er sameiginleg, með máluðu gólfi, hjólastöndum og útgengi á lóð hússins.
Þvottaherbergi: Er sameiginlegt í kjallara. Málað gólf og gluggi. Einnig er sér þvottaaðstaða innan íbúðar líkt og fyrr greinir í texta.

Húsið: Lítur vel út að utan og stutt síðan að var múrviðgert og málað ásamt því að skipt var um alla glugga í húsinu sem voru komnir á tíma. Auk þess er stigagangur hússins mjög snyrtilegur og nýlega málaður.

Lóðin: Er falleg og hefur fengið gott viðhald á undanförnum árum. Búið að endurnýja bílaplan og leggja ídráttarrör fyrir rafhleðslustöðvum. Einnig er búið að endurnýja baklóð hússins og koma fyrir nýlegum leiktækjum á lóð.

Allar nánari upplýsingar veitir:
Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali í síma 849-0672 eða á netfanginu heimir@fastlind.is.

 

img
Heimir Hallgrímsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Lind fasteignasala ehf.
Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
Lind fasteignasala ehf.

Lind fasteignasala ehf.

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
phone
img

Heimir Hallgrímsson

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
23. okt. 2020
40.850.000 kr.
43.900.000 kr.
113.8 m²
385.764 kr.
17. feb. 2017
29.750.000 kr.
37.900.000 kr.
113.8 m²
333.040 kr.
4. apr. 2014
21.750.000 kr.
26.000.000 kr.
113.8 m²
228.471 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Lind fasteignasala ehf.

Lind fasteignasala ehf.

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
phone

Heimir Hallgrímsson

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur