Lýsing
Aðalsteinn Jón Bergdal lgf. og Trausti fasteignasala kynna í einkasölu bjarta og fallega 3ja herbergja hæð á 2. hæð (efstu) í 3ja íbúða húsi á besta stað í Þingholtunum að Bergstaðastræti 46.
Smelltu hér til að sækja söluyfirlit. Fáðu frítt söluverðmat fyrir þína eign
Skv. Þjóðskrá Íslands er eignin skráð 78,0 fm.
Fyrirhugað fasteignamat 2026 er 71.100.000 kr.
Nánari lýsing:
Komið er inn í gott hol sem leiðir mann inn í allar vistarverur.
Stofa er rúmgóð og björt með parket á gólfi.
Eldhús er rúmgott með snyrtilega innréttingu með góðu skápaplássi og tengi fyrir uppþvottavél. Góður borðkrókur og parket á gólfi. Ísskápur og uppþvottavél fylgja.
Svefnherbergi I er mjög rúmgott með lofthengdri fataslá. Parket á gólfi.
Svefnherbergi II er rúmgott og með góðum skáp. Parket á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Baðkar með sturtu, handklæðaofn og snyrtileg innrétting með vaski.
Lítil geymsla eða kústaskápur í holinu.
Tvær aðrar geymslur fylgja íbúðinni. Önnur í kjallara og hin er köld í litlum skúr úti í garði. Samtals 9 fm sem eru ekki inni í fermetrafjölda íbúðarinnar.
Snyrtileg sameign og góður garður.
Þvottahús í sameign þar sem hver er með sitt tengi.
Nýleg rafmagnstafla.
Nánari upplýsingar um eignina veitir Aðalsteinn Jón Bergdal, löggiltur fasteignasali, í síma 767-0777 eða á netfanginu alli@trausti.is
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.