Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hafdís Rafnsdóttir
Dórothea E. Jóhannsdóttir
Sigurður Gunnlaugsson
Jón Gunnar Gíslason
Hafliði Halldórsson
Aðalsteinn Bjarnason
Margrét Rós Einarsdóttir
Guðný Ösp Ragnarsdóttir
Elka Guðmundsdóttir
Vista
svg

63

svg

55  Skoðendur

svg

Skráð  26. sep. 2025

fjölbýlishús

Vesturgata 7

101 Reykjavík

54.900.000 kr.

821.856 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2001751

Fasteignamat

59.600.000 kr.

Brunabótamat

33.300.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1989
svg
66,8 m²
svg
2 herb.
svg
1 baðherb.
svg
1 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Lyfta

Lýsing

FASTEIGNASALAN TORG KYNNIR: Falleg og vel skipulögð 2ja herbergja íbúð á 3. hæð í lyftufjölbýli fyrir 67 ára og eldri í miðbæ Reykjavíkur. Opið eldhús/stofa, forstofugangur, baðherbergi með sturtu og tengi fyrir þvottavél. Vestursvalir. Sérgeymsla í sameign. Mikil og björt sameign með glerþaki, sem nú er verið að endurnýja. Félagsmiðstöð fyrir eldri borgara og heilsugæsla í húsinu. Nánari upplýsingar veitir Jóhanna Kristín Tómasdóttir, lgfs. Í síma 837-8889 eða hjá johanna@fstorg.is
Nánari lýsing:
Forstofugangur: Með þreföldum fataskáp. 
Eldhús/stofa/borðstofa: Innrétting á einum vegg með ísskáp (getur fylgt). Stofa með útgengi út á svalir í vestur.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf með sturtu með hengi og innréttingu við vask. Þvottavél (getur fylgt).
Svefnherbergi: Frekar rúmgott með þreföldum fataskáp.
Gólfefni: Viðarparket á öllum gólfum nema á baðherbergi.
Sameign og sér geymsla: Sér geymsla er í sameign. Þá er bílakjallari undir húsinu þar sem hægt er að leigja stæði. Félagsmiðstöð með alls konar starfsemi fyrir eldri borgara er í húsinu ásamt heilsugæslu. Virkilega huggulegur stór bakgarður með glerþaki með bekkjum.
Viðhald: Verið er að laga glerþak í sameign og verður það gert á kostnað seljanda. 

Virkilega fín 2ja herbergja íbúð fyrir 67 ára og eldri á frábærum stað í göngufæri við miðbæinn og alla þjónustu. Nánari upplýsingar veitir Jóhanna Kristín Tómasdóttir, lgfs. Í síma 837-8889 eða hjá johanna@fstorg.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari
ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
29. sep. 2021
42.300.000 kr.
39.000.000 kr.
66.8 m²
583.832 kr.
20. mar. 2015
24.950.000 kr.
24.000.000 kr.
66.8 m²
359.281 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone