Opið hús: Árskógar 6, 109 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 08 01. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 30. september 2025 milli kl. 16:30 og kl. 17:00.
Lýsing
Vandaða og bjarta 2ja herbergja íbúð á 8. hæð (6081) í lyftuhúsi sem er ætlað fyrir 60 ára og eldri og eru félagsmenn í FEB. Íbúðin er með yfirbyggðum svölum og útsýni. Í húsinu eru tvær lyftur og aðstaða öll til fyrirmyndar. Innangengt er í félagsmiðstöð sem rekin er á vegum velferðasviðs Reykjavíkurborgar. Þar boðið upp á fjölbreytt félagsstarf. Í félagsmiðstöðinni er m.a. mötuneyti, setustofa, vinnustofa, hárgreiðslustofa, fótsnyrtistofa o.fl. Einnig er púttvöllur utandyra sem íbúar hafa aðgang að. Í húsinu er starfandi húsvörður.
Eignin getur verið laus við kaupsamning.
Eignin skiptist í forstofu/gang, eldhús, stofu/borðstofu, svefnherbergi, baðherbergi með tengi fyrir þvottavél en henni fylgir einnig geymsla og hlutdeild í sameign.
Birt stærð samkv. HMS 75,4 m² og skiptist í íbúðarrými 70,0 fm. ásamt geymslu sem er 5,4 fm.
SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT eða nánari upplýsingar og skoðunartíma veitir Ingibjörg Agnes í síma 897-6717 eða inga@landmark.
Nánari lýsing:
Forstofa/hol: Er rúmgóð með parketi og góðum fataskáp.
Eldhús: Er með u-laga viðar innréttingu.Tengi fyrir uppþvottavél. Korkflísar á gólfi.
Stofa/borðstofa: Er parketlögð með fallegum gluggum. Útgengt er út á yfirbyggðar svalir með tré flísum.
Svefherbergi: Er rúmgott með parketi á gólfi og rúmgóðum fataskápum.
Baðherbergi: Er dúkalagt með sturtu. Tengi fyrir þvottavél. Salerni endurnýjað.
Geymsla: Er í kjallara ( 5,4 fm).
Búið er að endurnýja alla ofna í íbúðinni ásamt því að skipta út salerni.
Húsgjöld eignar eru samtals kr. 34.372.- á mánuði
Húsið hefur fengið gott almennt viðhald í gegnum árin og hefur m.a verið skipt um drenlögn, málað, gler yfirfarið svo eitthvað sé nefnt. Búið er að koma upp hleðslustaurum fyrir rafmagnsbíla á bílaplani.
Virkilega fín eign á vinsælum stað fyrir 60 ára og eldri.
Nánari upplýsingar og skoðunartíma veitir Ingibjörg Agnes í síma 897-6717 eða inga@landmark.is
Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 2.700 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustusýslugjald: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat