Lýsing
Snyrtileg 2ja herbergja íbúð á efstu hæð.
Stórar svalir með svalalokun og fallegu útsýni.
Eignin er tóm og getur verið afhent við kaupsamning.
Sérmerkt bílastæði
Frábær fyrstu kaup.
*Smelltu hér til að sækja söluyfirlit*
Eignin skiptist í: Andyri, eitt svefnherbergi, stofu/borðstofu, eldhús, baðherbergi, svalir með svalarlokun og geymslu í sameign. Sameiginlegt þvottahús, þurrkherbergi og hjólageymsla innan sameignar.
Nánari lýsing:
Andyri/hol: Með flísum á gólfi, góður nýr fataskápur.
Eldhús: Er með flísum á gólfi, hvít eldhúsinnrétting, flísar á milli borðplötu og efri skápa.
Stofa/borðstofa: Rúmgóð með parketi á gólfi. Frá stofu er útgengt á stórar svalir með svalalokun, með góðu útsýni.
Svefnherbergi: Með parketi á gólfum og rúmgóðum nýjum fataskáp.
Baðherbergi: Er með sturtu, baðinnrétting og speglaskápur fyrir ofan vask, flísalagt í hólf og gólf.
Sérgeymsla er á jarðhæð.
Þvotta- þurrkherbergi er í sameigninlegu rými á jarðhæðinni.
Sameiginleg hjóla og vagnageymsla er á jarðhæðinni, snyrtileg sameign.
Sérmerkt bílastæði á bílaplani fylgir íbúðinni.
Mynddyrasímar eru í húsinu.
Viðhald:
Þakviðgerðum var að ljúka og fyrir tveim árum var farið í glugga að austanverðri hlið húsins. Húsið var málað, ásamt múrviðgerðum fyrir um tveim árum
Viðgerðir á húsi: Árið 2025 var verið að ljúka við endurnýjun á þaki. Árið 2023 var farið í alla glugga að austanverðu í húsinu, húsið múrviðgerðir og málað.
Pantið tíma fyrir skoðun, nánari upplýsingar veita:
Hallveig Jónsdóttir, Nemi í löggildingu, í síma 699-0496, netfang hallveig@stofnfasteignasala.is
Benedikt Ólafsson, Löggiltur fasteignasali, í síma 661-7788, netfang bo@stofnfasteignasala.is
Ert þú að fara selja og vantar þig trausta og metnaðarfulla fasteignasala með reynslu og með þinn hag í fyrirrúmi? Ef svo er þá er okkar heiðurinn að vera fasteignasalinn þinn eða þinna! Okkur vantar allar tegundir fasteigna á skrá vegna aukinnar sölu!
"Við höfum Heilindi - Dugnaður - Árangur að leiðarljósi".
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. STOFN Fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.
Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
Nýtt - Eignin er nýbygging.
Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.