Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Kristján Baldursson
Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir
Sólveig Regína Biard
Kristín María Stefánsdóttir
Viktoría Rannveig Larsen
Aðalsteinn Jón Bergdal
Hallgrímur Óli Hólmsteinsson
Vista
svg

53

svg

50  Skoðendur

svg

Skráð  28. sep. 2025

fjölbýlishús

Njálsgata 19

101 Reykjavík

69.900.000 kr.

976.257 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2268030

Fasteignamat

66.850.000 kr.

Brunabótamat

47.010.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2005
svg
71,6 m²
svg
2 herb.
svg
1 baðherb.
svg
1 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Bílastæði
svg
Lyfta
Opið hús: 2. október 2025 kl. 17:00 til 17:30

Opið hús: Njálsgata 19, 101 Reykjavík, Íbúð merkt: 02 01 03. Eignin verður sýnd fimmtudaginn 2. október 2025 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.

Lýsing

Trausti fasteignasala og Hallgrímur Hólmsteinsson löggiltur fasteignasali kynna fallega tveggja herbergja 71,6 fm íbúð á fyrstu hæð með sérmerktu stæði í lokuðum bílakjallara í nýlegu húsi á Ölgerðarreit í miðbæ Reykjavíkur. Húsið var byggt árið 2005 og eru 14 íbúðir í húsinu. Fyrir aftan húsið er sameiginlegur stór og skjólgóður garður og er innkeyrsla í bílageymsluna frá Frakkastíg. Gott og öflugt húsfélag er í húsinu. 

Íbúðin er skráð 71,6 fm hjá HMS og er geymslan 7,2 fm þar af. 

Bóki skoðun hjá Hallgrími Hólmsteinssyni í síma 896-6020  eða með tölvupósti á hallgrimur@trausti.is

Nánari lýsing eignar: 

Forstofan er með fataskáp og parket á gólfi.
Svefnherbergið er rúmgott með fataskáp og glugga sem snýr út í rólegan bakgarð. Parket á gólfi.
Stofan er björt með gluggum í suður út á Njálsgötu. Parket á gólfi.
Eldhús er með viðarinnréttingu og er opið að hluta inn í stofu. Eldhúsið er með glugga út í bakgarð. Parket á gólfi.
Baðherbergið er flísalagt með sturtu og upphengdu klósetti. 
Sérgeymsla er í kjallara er 7,2 fm og auk þess sameiginleg hjóla og vagnageymsla. 
Sameiginlegt þvottahús er á sömu hæð og íbúðin við hlið inngangsins.
Garðurinn er sameiginlegur fyrir öll húsin á Ölgerðarreitnum og er afar skjólgóður og fallegur.
Sérmerkt bílastæði í lokuðum bílakjallara fylgir íbúðinni.

Hér er gott tækifæri á að eignast fallega eign í nýlegu húsi í miðbæ Reykjavíkur. Verkefnið á Ölgerðarreit, Njálsgötu 19 var tilnefnt til íslensku byggingarlistaverðlaunanna 2007, en þar stendur:
„Hverfið næst gömlu Ölgerðarlóðinni á mörkum Frakkastígs og Njálsgötu í Reykjavík einkennist af ósamstæðum og marglitum húsum af öllum gerðum. Hin nýja íbúðaþyrping á reitnum tekur upp þráðinn í góðri sátt við nágranna sína með fjölbreytilegum húshlutum í svipuðum kvarða, sem raðast um húsagarð þar sem einnig er ekið inn í bílastæði í kjallara. Mjög er vandað til innra fyrirkomulags íbúða og ólík tengsl þeirra við staðinn og borgina eru nýtt á margvíslegan hátt, en yfirbragð þyrpingarinnar er stillt og efnisval yfirvegað.“

Umhverfið er mjög friðsælt og ekkert ónæði, Káratorg, handan við götuna, hefur verið endurhannað og verður endurbyggt fljótlega fyrir fjölskyldur. Brauð og Co er á Frakkastíg, handan við hornið. Allar nánari upplýsingar veitir Hallgrímur Hólmsteinsson löggiltur fasteignasali í síma 896-6020, eða með tölvupósti á netfangið hallgrimur@trausti.is

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

img
Hallgrímur Óli Hólmsteinsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Trausti fasteignasala
Vegmúla 4, 108 Reykjavík
Trausti fasteignasala

Trausti fasteignasala

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
phone
img

Hallgrímur Óli Hólmsteinsson

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
11. júl. 2016
31.350.000 kr.
34.900.000 kr.
71.6 m²
487.430 kr.
29. júl. 2015
28.700.000 kr.
31.650.000 kr.
71.6 m²
442.039 kr.
26. mar. 2007
19.040.000 kr.
160.000.000 kr.
443.6 m²
360.685 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Trausti fasteignasala

Trausti fasteignasala

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
phone

Hallgrímur Óli Hólmsteinsson

Vegmúla 4, 108 Reykjavík