Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Sveinn Sigurðsson
Björn Davíðsson
Vista
fjölbýlishús

Drekagil 28 íbúð 101

603 Akureyri

42.900.000 kr.

667.185 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2145676

Fasteignamat

38.700.000 kr.

Brunabótamat

37.050.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1993
svg
64,3 m²
svg
2 herb.
svg
1 baðherb.
svg
1 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Lyfta

Lýsing

Drekagil 28 íbúð 101 - Mjög snyrtileg og nokkuð endurbætt 2ja herbergja íbúð í góðu fjölbýlishúsi með lyftu í Giljahverfi - Stærð 64,3 m².

Eignin skiptist með eftirfarandi hætti:
Forstofa, eldhús, stofa, svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymsla í sameign. 

Forstofa er með vínylparketi á gólfi og góðum nýlegum fataskáp ásamt opnu fatahengi.
Eldhús er með ljósri innréttingu, þar er pláss fyrir uppþvottavél og ágætis borðkrókur. Vínylparket er á gólfi. 
Stofa er björt og rúmgóð, þar er vínylparket á gólfi. Úr stofu er útgengt á steyptar svalir er snúa til suðurs.
Svefnherbergi er nokkuð rúmgott, þar er góður nýlegur fataskápur og vínylparket er á gólfi. 
Baðherbergi er með ljósri innréttingu, baðkari með sturtutækjum, wc og opnanlegum glugga. Dúkur er á gólfi og flísar eru á hluta veggja. 
Þvottahús er á jarðhæð, þar er pláss fyrir þvottavél og þurrkara. Einnig er þar innrétting með vask.
Geymsla er í sameign, þar eru vegghillur, rafmagnstengill og opnanlegur gluggi. 

Annað:
- Snyrtileg eign á vinsælum stað.
- Nýlegar innihurðar og gólfefni.
- Hjóla- og vagna geymsla með sér inngang er á jarðhæð.
- Dekkjageymsla er í sameign.
- Ljósleiðari kominn inn og tengdur. 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Hvammur Eignamiðlun

Hvammur Eignamiðlun

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
3. okt. 2022
26.500.000 kr.
34.000.000 kr.
64.3 m²
528.771 kr.
20. sep. 2016
14.900.000 kr.
16.800.000 kr.
64.3 m²
261.275 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Hvammur Eignamiðlun

Hvammur Eignamiðlun

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone