Lýsing
Björt og vel skipulögð þriggja herbergja 92,8 fm íbúð á 4. hæð í lyftuhúsi við Hrísmóa 1 í Garðabæ.
Um er að ræða þriggja herbergja íbúð í góðu lyftuhúsi með tvennum svölum, sér þvottahúsi og 4,7 fm geymslu í sameign. Íbúðin er björt og vel skipulögð með svalir bæði úr eldhúsi og hjónaherbergi.
✅ Björt og rúmgóð þriggja herbergja íbúð í lyftuhúsi á 4. hæð
✅ Tvennar svalir – útgengi úr eldhúsi og hjónaherbergi
✅ Sér þvottahús og sér búr/geymsla innan íbúðar
✅ Rúmgott baðherbergi með baðkari og sturtu
✅ Eignin fæst afhent við kaupsamning
Nánari lýsing:
Anddyri: Flísalagt með aðstöðu fyrir fatahengi.
Stofa og borðstofa: Björt og rúmgóð með parketi á gólfi.
Eldhús: Eikarinnrétting með helluborði og bakarofni, tengi fyrir uppþvottavél. Borðkrókur og búr inn af eldhúsi. Útgengi á svalir úr eldhúsi.
Svefnherbergi (2): Tvö rúmgóð herbergi, annað með fataskáp. Útgengi úr hjónaherbergi á rúmgóðar svalir.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og upp á miðja veggi. Salerni, baðinnrétting, baðkar og sturtuklefi.
Þvottahús: Sér rými innan íbúðar með flísum á gólfi, vaski, skáp og hillum. Tengi fyrir þvottavél.
Geymsla: Sér geymsla í sameign – 4,7 fm.
Staðsetning
Eignin er afar miðsvæðis í Garðabæ nálægt leik- og grunnskóla, er rétt við Garðatorg þar sem er til staðar fjölbreytt verslun og þjónusta.
Afhending
Eignin fæst afhent við kaupsamning
Sækja HÉR söluyfirlit samstundis
Hafðu samband fyrir nánari upplýsingar og skoðun:
Monika Hjálmtýsdóttir, löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur – 823-2800 / monika@landmark.is
Júlíus Jóhannsson, löggiltur fasteignasali – 823-2600 / julius@landmark.is
Láttu okkur sjá um söluna fyrir þig – við veitum þér faglega söluráðgjöf
Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 2.700 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustusýslugjald: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat