Lýsing
Smelltu hér til að sækja söluyfirlit.
Fáðu frítt söluverðmat fyrir þína eign.
EIgnin er skráð samkv. fasteignayfirliti 77,2 fm.
Fyrirhugað fasteignamat 2026 er 68.150.000 kr.
Nánari lýsing:
Anddyri með flísum á gólfi og góðum yfirhafnaskáp.
Stofa og borðstofa í alrými sem er mjög rúmgott og var gert ráð fyrir svefnherbergi í öðrum enda stofunnar. Fiskibeinaparket á gólfum í alrými. Fallegt útsýni í norður.
Eldhús opið yfir í alrými með fallegri u-innréttingu sem hægt er að sitja við. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél. Vifta yfir helluborði. Fiskibeinaparket á gólfi. Útgengt á góðar svalir.
Svefnherbergi er rúmgott með fiskibeinaparket á gólfi og góðan fataskáp. Fallegt útsýni í norður.
Baðherbergi með epoxy á gólfi og vegg að hluta. "Walk-in" sturta með innbyggð blöndunartæki, upphengt salerni, handklæðaofn og falleg innrétting.
Hliðarrými sem nýtist í dag sem skrifstofa er upphaflega teiknað sem geymsla og auðvelt væri að breyta því.
Íbúðin er í sögulegu húsi miðsvæðis í Reykjavík og stutt í miðbæinn, Kringluna, Klambratún og alla helstu þjónustu.
Nánari upplýsingar um eignina veitir Aðalsteinn Jón Bergdal, löggiltur fasteignasali, í síma 767-0777 eða á netfanginu alli@trausti.is
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.