Lýsing
Eggert löggiltur fasteignasali verður á staðnum.
STOFN FASTEIGNASALA KYNNIR: Bjarta og opna 85,8fm 3ja herbergja íbúð á fyrstu hæð, gengið upp einn stigapall í snyrtilegu fjölbýli. Á undanförnum 5 árum hefur bæði húsið og íbúðin fengið gott viðhald og endurnýjun m.a. skipt um parket á íbúðinni ásamt því að sett var ný eldhúsinnrétting og baðherbergi endurnýjað. Skipt var um glugga, gler og svalahurð ásamt því var hluti af svölum brotin niður og endurgert þegar húsið var múrviðgert og málað. Járn og pappi á þaki endurnýjað ásamt rennum. Lagnir frá húsi og í brunn endurnýjaðar ásamt dreni.
Sýningu á eigninni annast Eggert Maríuson löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala s.690-1472 eða með tölvupósti: eggert@stofnfasteignasala.is
Forstofa er með harðparketi á gólfi og upphengi.
Stofa er með harðparketi á gólfi og þaðan er útgengt á suðursvalir.
Eldhús er með harðparketi á gólfi og svörtum neðri skápum.
Svefnherbergin eru tvö og eru með harðparketi á gólfum og skápar í aðalsvefnherbergi.
Baðherbergi er með flísum á gólfi, baðkar með sturtu, fallegar flísar á veggjum í kringum baðkar og gluggi með opnanlegt fag, skúffur undir vask og speglaskápur.
Þvottahús er í sameign þar sem hver er með sína þvottavél.
Geymsla er í sameign.
Hjóla- og vagnageymsla í sameign.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. STOFN Fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.