Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Irpa Fönn Hlynsdóttir
Vista
fjölbýlishús

Jörfabakki 10

109 Reykjavík

73.900.000 kr.

656.889 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2048266

Fasteignamat

61.150.000 kr.

Brunabótamat

56.500.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1969
svg
112,5 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Svalir

Lýsing

Kaupstaður fasteignasala kynnir í einkasölu Jörfabakka 10, 109 Reykjavík.

Fjögurra herbergja íbúð í rólegu og grónu hverfi, Bökkunum í Breiðholti. Smellið hér fyrir staðsetningu.

Smelltu hér fyrir söluyfirlit og önnur skjöl, nánari upplýsingar og tilboðsgerð.

Jörfabakki 10, byggt árið 1969, íbúð á hæð 94,7m², föndurherbergi 10,8m² og geymsla 7 m², samtals 112,5m² samkvæmt skráningu HMS.

Áætlað fasteignamat árið 2026: 67.700.000,-

Skipulag íbúðar: anddyri, eldhús, alrými með stofu og borðstofu, þrjú herbergi og baðherbergi.

Í sameign: föndurherbergi, sér geymsla, hjóla- og vagnageymsla.

Anddyri er opið og leiðir inn á gang sem tengir saman önnur rými eignarinnar. Fatahengi og parket á gólfi.

Stofa og borðstofa í einu rými, parket á gólfi, útgengt út á svalir.

Eldhús, Svört og eikarlituð innrétting, stálvaskur, innbyggður ísskápur, helluborð, ofn í vinnuhæð. Gert er ráð fyrir uppþvottavél í innréttingu. Gengið er frá eldhúsi inn í þvottahús með parket á gólfum og plássi fyrir þvottavél og þurrkara.

Herbergi I, tvöfaldur fataskápur, parket.

Herbergi II, parket.

Herbergi III, hjónaherbergi, sexfaldur fataskápur. Útgengt út á svalir til austur.

Baðherbergi, flísalagt í hólf og gólf, „walk-in“ sturta, upphengt salerni, vaskinnrétting, speglaskápur, gluggi.

Gólfefni: anddyri, eldhús, alrými og herbergi parketlögð, flísar á baðherbergi. Hiti í gólfum í anddyri, eldhúsi og baðherbergi.

Föndurherbergi og geymsla í einu rými, mögulegt að fjarlægja vegg sem aðskilur rýmin, parket.

Endurbætur síðustu ár:

2021: smíðaðir veggir, gólfefni fjarlægt og rafmagn endurnýjað, raflagnaefni og tenglar.

2022: Baðherbergi endurnýjað, skipt um dyrasíma og lagt parket.

2023: Eldhús endurnýjað, skipt um hurðar, raflagnir kláraðar og skipt um rafmagnstöflu.

Samkvæmt eignaskiptasamningi:

Eignin er íbúð á 2. hæð á teikningum merkt 0201, 94,7 m², föndurherbergi 0009, 10,8 m² og geymsla 0010, 7,0 m² að stærð og svalir 0205 og 0207. Auk þess fylgir eigninni hlutdeild í sameign allra í matshluta 05 sem er þvottur 0013, barnav/hjól 0014, sorpgeymsla 0015, gangur/stigi 0016, stigagangur 0103, 0203 og 0303, þakrými 0401 og tröppur 0017. Hlutfallstölur eru í matshluta 05: 17,22% í hita mhl. 05: 17,12% í lóð og heildarhúsi: 2,19%

Um skoðunarskyldu:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kaupstaður fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Upplýsingar sem koma fram í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda og eftir atvikum húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi – 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga / 1,6% fyrir lögaðila
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 79.900 m.vsk.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða er umsýslugjald 129.900 m.vsk.

Allar nánari upplýsingar á skrifstofu: www.kaupstadur.is | Borgartún 29, 105 Reykjavík | Kaupstaður

Opið alla virka daga milli kl. 10:00-15:00. Svarað er í síma milli kl. 09:00-16:00.

Nánari upplýsingar í síma 4540000 eða kaupstadur@kaupstadur.is

Kaupstaður fasteignasala

Kaupstaður fasteignasala

Borgartúni 29, 105 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
24. jan. 2020
38.050.000 kr.
39.000.000 kr.
112.5 m²
346.667 kr.
25. nóv. 2019
38.000.000 kr.
40.000.000 kr.
112.5 m²
355.556 kr.
19. okt. 2006
17.870.000 kr.
19.500.000 kr.
112.5 m²
173.333 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Kaupstaður fasteignasala

Kaupstaður fasteignasala

Borgartúni 29, 105 Reykjavík