Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Finnbogi Hilmarsson
Gunnlaugur A. Björnsson
Brynjólfur Snorrason
Ragnar Þorgeirsson
Sigríður Lind Eyglóardóttir
Ásdís Írena Sigurðardóttir
Elsa Björg Þórólfsdóttir
Vista
fjölbýlishús

Álfheimar 44

104 Reykjavík

81.900.000 kr.

734.529 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2021158

Fasteignamat

70.850.000 kr.

Brunabótamat

50.100.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1960
svg
111,5 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Útsýni
svg
Sameiginl. inngangur

Lýsing

Fasteignasalan Heimili kynnir Álfheima 44. Húsið er teiknað af Sigvalda Thordarsyni.  
Rúmgóð og björt fjögurra herbergja endaíbúð á þriðju hæð samtals 111,5 fm. Íbúðin er mikið endurnýjuð, vel skipulögð og með tvennar svalir. 

Nánari lýsing: 
Forstofa/hol: komið er inn í rúmgott hol með góðu fatahengi.
Eldhús: Eldhúsið er nýlega endurnýjað og endurhannað m.a með opnun inn í stofu. Rafmagn endurnýjað sem og neysluvatnslagnir. Það er rúmgott með stórum glugga, góðu skápaplássi og góðri vinnuaðstöðu. Tengi er fyrir uppþvottavél.
Stofa/borðstofa: Stofa og borðstofa eru í björtu og fallegu rými sem er opið við eldhús. Útgengt frá stofu á suður svalir.  Nýtt harðparket er á allri íbúðinni. 
Baðherbergi: á baðherberginu er baðkar með sturtuaðstöðu, hvítur skápur er undir vaski og á vegg. Flísar eru á gólfi og á veggjum að hluta.
Hjónaherbergi: er rúmgott með parketi á gólfi, innangengt í fataherbergi og útgengt út á austur svalir. Endurnýjuð svalahurð, gluggi og ofn.
Barnaherbergi: eru tvö bæði rúmgóð, fataskápur í öðru. Parket á gólfi. Á svefnherbergisgangi er rúmgóður innfelldur skápur. 
Geymsla:  í sameign er rúmgóð sér geymsla með glugga sem fylgir eigninni. 
Sameign: sameiginlegt þvottahús er í sameigninni og einnig sameiginleg hjóla og vagnageymsla.
Tengi fyrir fjóra rafmagnsbíla á bílastæði.

Viðhald og framkvæmdir:
2017 Opnað á milli eldhús og stofu. Eldhúsinnrétting og tæki endurnýjuð. 
2017 Frárennslislagnir undir húsi endurnýjaðar.
2017 Nýtt parket á alla íbúð. Ný kaldavatnslögn.
2018 Skólplagnir fóðraðar og drenlagnir endurnýjaðar.
2020 húsið múrviðgert og málað að utan.
2020 Skipt um glugga og gler þar sem þurfti. ( 5 gluggar af 8 ) 
2020 Þakjárn, einagrun og þakpappi endurnýjað.
2021 Eldvarnarhurðir í allar íbúðir á stigagangi.
2023 Gluggar í þvottahúsi í sameign endurnýjaðir. 
2024 Gluggi, svalahurð og ofn í hjónaherbergi endurnýjað. 
2025 Drenað norðan megin við húsið, ný stétt og snjóbræðsla.



Sérlega vel staðsett eign á þessum fjölskylduvæna og eftirsótta stað rétt við Laugardalinn þar sem má finna margvíslega útivistar og afþreyingar möguleika og njóta náttúru á fallegum gönguleiðum. Skólar, leikskólar, verslanir og ýmiss þjónusta er einnig í göngufæri. 

Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Sigríður Lind Eyglóardóttir fasteignasali, sigridur.lind@heimili.is / 8994703


Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002.  Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á heimili@heimili.is og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.

img
Sigríður Lind Eyglóardóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Heimili fasteignasala
Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík
Heimili fasteignasala

Heimili fasteignasala

Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík
phone
img

Sigríður Lind Eyglóardóttir

Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
6. jan. 2017
35.400.000 kr.
38.200.000 kr.
111.5 m²
342.601 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Heimili fasteignasala

Heimili fasteignasala

Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík
phone

Sigríður Lind Eyglóardóttir

Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík