Upplýsingar
Byggt 2024
78,9 m²
3 herb.
1 baðherb.
2 svefnh.
Þvottahús
Útsýni
Sameiginl. inngangur
Hjólastólaaðgengi
Bílastæði
Lyfta
Laus strax
Opið hús: 3. desember 2025
kl. 17:30
til 18:00
Opið hús miðvikudaginn 3 desember milli kl. 17:30 - 18:00. Aðkoma frá Dugguvogi eða inngarði. Möguleiki á 20% hlutdeild verktaka.
Lýsing
Eignamiðlun kynnir:
ÖXAR20 er ný fjármögnunarleið sem getur hentað vel til að binda minna eigið fé í húseign, lækka lántöku, lækka greiðslubyrði eða auka möguleika á greiðslumati hjá fjármálastofnun. Sjá nánar inná www.oxar20.is - Sölumaður veitir frekari upplýsingar.Íbúð merkt 209 - 3ja herbergja 78,9 fm íbúð á annari hæð með tveim svefnherbergjum og rúmgóðum svölum. Rúmgott svefnherbergi og minna barnaherbergi, baðherbergi, opið eldhús inn í borðstofu og stofu. Bílastæði í bílakjallara. Íbúðirnar eru tilbúnar til afhendingar við kaupsamning.
Fáðu sent söluyfirlit hér
Allar íbúðir eru með sér loftræstikerfi sem stuðlar að heilbrigði húss og íbúa, auk orkusparnaðar sem skilar allt að 80% endurnýtingu á varma. Vönduð innrétting fyrir þvottavél og þurrkara á baðherbergi. Svalir með rennihurð út á góðar svalir.
Nánari upplýsingar veitir: Gunnar Bergmann löggiltur fasteignasali í síma 839-1600 eða gunnarbergmann@eignamidlun.is
Smellið hér fyrir heimasíðu verkefnisins og skilalýsingu
Nánari lýsing:
Komið er inn forstofu með fataskápum.
Baðherbergi: Baðherbergi með sturtuklefa. Handlaug, handklæðaofn og upphengt salerni. Flísar á gólfum og veggjum.
Eldhús: Eldhúsinnrétting með góðu skápaplássi frá Axis. Ofn í vinnuhæð, góð vinnuaðstaða og gott skúffupláss.
Svefnherbergi: Rúmgott með góðu skápaplássi. Barnaherbergi með skápum.
Stofa/ borðstofa: Rúmgóð setustofa og borðstofa opið inn í eldhús. Gengið er út á svalir út frá stofu, stór rennihurð.
Bílakjallari og geymsla: Bílastæði í lokuðum bílakjallara fylgir íbúðinni ásamt 11,4 fm geymslu.
Íbúðirnar verða afhentar án gólfefna, nema á votrýmum verða flísalögð. Eldhúsinnrétting er sérsmíðuð af vandaðri gerð frá Axis.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati. (0,4% ef um er að ræða fyrstu eign)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr kauptilboði.
Eignamiðlun ehf. - Grensásvegur 11, 108 Reykjavík - gunnarbergmann@eignamidlun.is - Gunnar Bergmann Jónsson löggiltur fasteignasali.
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook