Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Maack Gunnarsson
Svanþór Einarsson
Theodór Emil Karlsson
Steingrímur Benediktsson
Vista
fjölbýlishús

Jöfursbás 7c

112 Reykjavík

87.900.000 kr.

920.419 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2518583

Fasteignamat

71.650.000 kr.

Brunabótamat

66.450.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2023
svg
95,5 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Bílastæði
svg
Lyfta

Lýsing

** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 ** 

Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Falleg 95,5 m2 3ja herbergja útsýnisíbúð á 2. hæð ásamt bílastæði í lokaðri bílageymslu í nýlegu fjölbýlishúsi (byggt 2023). Eignin er skráð 95,5 m2 en þar af íbúð 83,2 m2 og geymsla 12,3 m2. Eignin skiptist í forstofugang, 2 svefnherbergi, baðherbergi, stofu og eldhús. Sérgeymsla og bílastæði í kjallara. Svalir með glæsilegu útsýni til sjávar. Fallega innréttingar, steinn á borðum í eldhúsi og á baðherbergi. Gólfhiti og aukin lofthæð. Stutt í alla helstu þjónustu, hvort sem það er í verslun, skóla, leikskóla eða íþróttamannvirki.  Búið er að setja upp hleðsustöðvakerfi frá ON í bílakjallara.

Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.


Nánari lýsing:
Forstofugangur er rúmgóður með innbyggðum fataskáp og parketi á gólfi.
Eldhús opið inn í stofu með vandaðri innréttingu frá VOKE sem nær til lofts. Í innréttingu er ofn, span hellurborð, vifta, innbyggður ísskápur, innbyggð uppþvottavél og niðurfelldur vaskur. Quartz steinn frá Technistone á borði.
Stofa er með gólfsíðum gluggum og parketi á gólfi. Úr stofu er útgengt á rúmgóðar svalir íbúðar með stórbrotnu útsýni til sjávar og fjalla.
Baðherbergi flísalagt og með vandaðri innréttingu. Á baði er vegghengt salerni, 'walk in' sturta og handklæðaofn. Tengi er fyrir þvottavél og þurrkara.
Hjónaherbergi er rúmgott með gólfsíðum glugga, parketi á gólfi og góðum fataskápum sem ná til lofts.
Svefnherbergi nr. 2 er rúmgott með gólfsíðum glugga, parketi á gólfi og fataskáp sem nær til lofts
Sérgeymsla er í kjallara hússins. Er skráð 12,3 m2
Íbúðinni fylgir hlutdeild að sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu.

Fyrirhugað fasteignamat fyrir 2026 er kr. 77.350.000

Verð kr. 87.900.000,-

Annað: Húsin eru hönnuð af ARKÞING Arkitektum. Húsið er klætt að utan með álklæðningu. Gluggarnir eru ál-tré gluggar frá Byko sem hafa það einkenni að vera með hátt einangrunargildi fyrir hita og hljóði.Sérsmíðaðar innréttingar frá VOKE-III, blöndunartæki frá Grohe og hreinlætistæki frá Duravit. Quartz steinn frá Technistone er á eldhúsum og böðum. Parket og flísar er frá Ebson og eldhústæki frá AEG. Hitalagnir í helstu gönguleiðum lóðar. Djúpgámar á lóð fyrir flokkað rusl.

Staðsetning: Við Eiðsvík í Gufunesi er að rísa spennandi íbúðabyggð í gömlu iðnaðarhverfi sem nú hýsir kvikmyndaver og fyrirtæki í skapandi greinum. Landslagið er einstakt, vogskornir klettar, strendur með svörtum og gylltum sandi, fuglalíf og útsýni yfir Geldinganes, Viðey, Esju og miðborgina. Engar götur skilja byggðina frá náttúrunni og einungis hjóla- og göngustígar liggja að hafi. Vatnastrætó, ylströnd, göngubrú út í Viðey og góðir göngu- og hjólastígar er meðal þess sem mun einkenna þetta skemmtilega hverfi. Það er einstakt að eiga kost á slíkri náttúruperlu í miðri höfuðborginni. Það er stutt í alla þjónustu, hvort sem það er í verslun, skóla, leikskóla eða íþróttamannvirki. Í Spönginni má m.a. finna ýmsar matvöruverslanir, vínbúð, veitingastaði, bókasafn, apótek, heilsugæslu, menningarmiðstöð og tónlistarskóla. Stutt er í Vættaskóla sem er grunnskóli og Borgarholtsskóla sem er framhaldsskóli.  Þá eru fjölmargir leikskólar í nágrenninu auk þess sem golfvöllur er skammt undan.



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

img
Svanþór Einarsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Fasteignasala Mosfellsbæjar
Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Fasteignasala Mosfellsbæjar

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
phone
img

Svanþór Einarsson

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
10. nóv. 2023
63.850.000 kr.
78.900.000 kr.
95.5 m²
826.178 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Fasteignasala Mosfellsbæjar

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
phone

Svanþór Einarsson

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ