Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1953
64,7 m²
3 herb.
1 baðherb.
2 svefnh.
Þvottahús
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 13. nóvember 2025
kl. 17:00
til 17:30
Lýsing
Eignamiðlun kynnir:
Björt og falleg, þriggja herbergja 65 fm íbúð á efstu hæð í þríbýli í gamla bænum í Hafnarfirði. Íbúðin er að hluta undir súð og er gólfflöturinn því stærri. Húsið stendur hátt og er því frábært útsýni úr íbúðinni til allra átta. Miklar endurbætur hafa átt sér stað á húsinu á undanförnum árum. M.a. hefur þak verið endurnýjað og skipt um alla glugga í húsinu. Rafmagn hefur verið endurnýjað að hluta sem og ofna- og neysluvatnslagnir. Ytra birði hefur verið múrviðgert og málað. Miðhæð hússins einnig til sölu og er mjög auðvelt að samnýta/sameina þessar tvær hæðir.**Sækja söluyfirlit**
Allar upplýsingar veitir Lilja s. 649-3868 eða lilja@eignamidlun.is
Nánari lýsing:
Sameiginlegur inngangur er með miðhæð hússins. Teppalagðar tröppur liggja frá anddyri upp á efri hæð.
Hol: Rúmgott hol sem tengir saman rými íbúðar. Harðparket á gólfi.
Eldhús: Bjart og rúmgott með eldri innréttingu. Harðparket á gólfi.
Baðherbergi: Endurnýjað 2015. Flísalagt í hólf og gólf með upphengdu salerni, innréttingu, handklæðaofni og baðkari með sturtuaðstöðu. Góður, opnanlegur gluggi. Pláss fyrir þvottavél en einnig er sameiginlegt þvottahús í kjallara.
Stofa: Mjög rúmgóð og björt með frábæru útsýni. Harðparket á gólfi.
Svefnherbergi 1: Mjög rúmgott með góðu skápaplássi. Harðparket á gólfi. Útgengi á vestursvalir.
Svefnherbergi 2: Gott herbergi með harðparketi á gólfi.
Geymsla: Ágæt geymsla tilheyrir íbúð inn af anddyri. Einnig er geymsluloft sem aðgengilegt er frá holi.
Sameiginleg bílastæði eru á lóð.
Nánari upplýsingar veitir:
Lilja Guðmundsdóttir löggiltur fasteignasali, sími: 649-3868 / lilja@eignamidlun.is
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
4. des. 2014
47.500.000 kr.
21.500.000 kr.
10201 m²
2.108 kr.
26. maí. 2014
15.750.000 kr.
12.600.000 kr.
64.7 m²
194.745 kr.
15. sep. 2011
13.350.000 kr.
19.300.000 kr.
64.7 m²
298.300 kr.
12. jan. 2009
13.300.000 kr.
20.700.000 kr.
222.4 m²
93.076 kr.
12. jan. 2009
13.300.000 kr.
19.300.000 kr.
64.7 m²
298.300 kr.
14. jan. 2009
13.300.000 kr.
53.000.000 kr.
222.4 m²
238.309 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025