Lýsing
Miklaborg og Böddi lgf. kynna:
Glæsileg og rúmgóð 4ra herbergja íbúð á vinsælum stað í Hlíðunum – Drápuhlíð 30
Falleg og björt íbúð á annarri hæð með sérinngangi í vel við haldnu fjölbýlishúsi á þessum eftirsótta stað í Hlíðunum.
Eignin er sérstaklega rúmgóð, vel skipulögð og býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika.
Auðvelt er að breyta íbúðinni í þannig að hún verði 3 svefnherbergi með einfaldri tilfærslu á eldhúsi.
Nánari lýsing:
Forstofa: Dúkur á gólfi með góðu plássi fyrir fatahengi.
Stofur: Tvær samliggjandi stofur með nýlegu harðparketi. samtals 34 fm.
Hjónaherbergi: Rúmgott með góðum fataskápum og nýlegu harðparketi á gólfi.
Barnaherbergi: Bjart og snyrtilegt með nýlegu harðparketi.
Baðherbergi: Flísalagt með baðkari.
Eldhús: Góð eldhúsinnrétting. Með einfaldri aðgerð er hægt að færa eldhúsið inn í stofuna, sem myndar opið og rúmgott rými með báðum stofunum – samtals um 34 fm.
Svalir: Útgengt úr stofu á suðursvalir sem hafa verið endurgerðar og stækkaðar. Hægt er að ganga þaðan niður í garð.
Geymsla: Sérgeymsla í kjallara.
Þvottahús: Sameiginlegt í kjallara.
Eignin samkvæmt skráningu hjá HMS:
Fasteignanúmer: 203-1136
Birt stærð: 107,9 fm
Heimilisfang: Drápuhlíð 30, Reykjavík
Viðhald og endurbætur:
Dren- og skolplagnir voru endurnýjaðar áður en núverandi eigandi keypti eignina, samkvæmt fyrri eiganda.
Vorið 2022 hófu Ás-Smíði umfangsmiklar viðgerðir að utan: múrviðgerðir, steining, endurnýjun á gluggum og hurðum (svala- og útidyrahurðum).
Svalir voru endurgerðar og stækkaðar.
Verkinu lauk í nóvember 2024.
Skipt var um alla glugga í húsinu sem þurfti að endurnýja, þar með talið glugga á hlið hússins og þá sem tilheyra sameign.
Staðsetning og umhverfi:
Drápuhlíð 30 stendur á rólegum og grónum stað í Hlíðunum, í nálægð við skóla, leikskóla, verslanir og þjónustu.
Stutt er í miðbæinn, Háskólann í Reykjavík og gönguleiðir í Öskjuhlíð og Klambratún.
Nánari upplýsingar: