Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Knútur Bjarnason
Rúnar Þór Árnason
Gunnar Sv. Friðriksson
Hólmar Björn Sigþórsson
Linda Björk Ingvadóttir
Kristján Þór Sveinsson
María Steinunn Jóhannesdóttir
Ragnheiður Árnadóttir
Vista
svg

10

svg

9  Skoðendur

svg

Skráð  12. nóv. 2025

fjölbýlishús

Austurmörk 32

810 Hveragerði

62.900.000 kr.

776.543 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2532255

Fasteignamat

54.050.000 kr.

Brunabótamat

43.950.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 2025
svg
81 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Sérinngangur
svg
Lyfta
Opið hús: 15. nóvember 2025 kl. 12:00 til 14:00

Opið hús: Austurmörk 32, 810 Hveragerði, Íbúð merkt: 04 01 04. Eignin verður sýnd laugardaginn 15. nóvember 2025 milli kl. 12:00 og kl. 14:00.

Lýsing

Helgafell fasteignasala kynnir AUSTURMÖRK 32E íbúð 0104, 810 Hveragerði.

Þriggja herbergja íbúð á fyrstu hæð í nýju fjölbýlishúsi í Tívolíbyggð Hveragerði. 
Húsið er vel staðsett í miðsvæðis í Hveragerði, stutt í alla almenna þjónustu, útivist og ýmiskonar afþreyingu, sjá nánar hér. 

Eignin skiptist í 76,8 fm. íbúð og 4,2 fm. sérgeymslu, samtals að birtri stærð 81,0 fm., samkvæmt skráningu HMS. 
Fyrirhugað fasteignamat fyrir árið 2026 er 58.050.000,-

Skipulag eignar: Anddyri, alrými með stofu, borðstofa, eldhús, tvö svefnherbergi og baðherbergi. Í sameign sérgeymsla, ásamt hjóla,- og vagnageymslu. 

Aðalverktaki: JÁVERK ehf.
T.ark arkitektar: Aðalhönnuðir hússins.
Burðarþolshönnun og lagnahönnun: Verkfræðistofa Reykjavíkur.
Raflagnahönnun: Voltorka ehf.

Tívólíbyggð samanstendur af sjö fjöleignarhúsum með samtals 80 íbúðum. Smellið hér fyrir heimasiðu Tívolíbyggðar.

Íbúðin er byggð samkvæmt kröfum Umhverfisstofnunar til að hljóta Svansvottun.  
Svansvottaðar íbúðir eru almennt taldar betri fyrir umhverfi og heilsu, þar sem strangar kröfur eru gerðar um innihald skaðlegra efna í öllu byggingarefni.
Í íbúðinni hefur verið tryggð góð innivist með góðri loftræstingu og hljóðvist. Hönnun byggingarinnar miðar að því að orkunotkun sé hagkvæm. 
Smellið hér fyrir upplýsingar um Svansvottun.

Nánari lýsing:
Anddyri með fataskáp.
Alrými með stofu og eldhúsi. Útgengt er úr alrými á hellulagðan sérafnotareit til suðurs. 
Í eldhúsi er sérsmíðuð innrétting, heimilistæki frá AEG, spanhelluborð og gufugleypir, bökunarofn, kæli- og frystiskápur og uppþvottavél. 
Vaskur og Grohe blöndunartæki og innbyggð lýsing undir efri skápum. 
Tvö svefnherbergi, bæði með fataskápum.
Baðherbergi með flísalögðu gólfi og veggjum í sturtu, upphengdu salerni, vaskinnréttingu, speglaskáp og Grohe blöndunartækjum. 
Gólfhiti er á baðherbergi, auk þvottaaðstöðu.  
Í sameign er sérgeymsla og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.  

Íbúðinni verður skilað samkvæmt skilalýsingu. Flísar á baðherbergi, önnur gólf án gólfefna.
Innréttingar eru allar sérsmíðaðar frá Selós. Íbúð er upphituð með ofnum í lokuðu kerfi með varmaskipti. 
Loftræstikerfi með varmaendurvinnslu er í íbúð. Vélrænt útsog er í geymslum.

ATH. MYNDIR ERU TEKNAR ÚR SÝNINGARÍBÚÐ, 0101 Í AUSTURMÖRK 26.

Austurmörk 32 er 9 íbúða, tveggja hæða hús. Húsið er staðsteypt og klætt að utan með ál-trapísuklæðningu frá Málmtækni.
Þakplata er staðsteypt, frágengin með þakdúk frá Sika og þakmöl. Gluggar og hurðar eru álkæddir timburgluggar frá Ideal Combi. Lóð er frágengin með malbikuðum bílastæðum og stígum. Hellualagt yfirborð við inngang sem og á sérafnotareittum. Önnur svæði eru frágengin með grasi. 
Sameiginleg bílastæði á lóð. Tengipunktar fyrir rafbílahleðslur eru í grennd við bílastæði. Sameiginleg sorpskýli á lóð. 
Íbúðinni fylgir sérafnot á lóð, sérafnotareitur íbúðar er eins og grunnmynd sýnir. 

Samþykktir aðaluppdrættir hönnuða eru gildandi ef upp kemur misræmi milli þeirra og annarra gagna.
Allt auglýsinga-, og kynningarefni eins og tölvugerðar myndir og teikningar eru eingöngu til hliðsjónar.
Laus búnaður og annað sem kann að vera sýnt á teikningum eða þrívíddar myndum, en er ekki talið upp í skilalýsingu, fylgir ekki íbúðum.
Athygli er vakin á því að á meðan byggingarframkvæmdum stendur áskilur seljandi sér allan rétt til að gera tækni-, efnis-, og útlitsbreytingar.
 
Athugið að kaupendur greiða stimpil-, þinglýsingar- og lántökugjald vegna kaupsamnings og nýrra lána, auk þjónustu- og umsýslugjalds til fasteignasölunnar.
Um er að ræða eign í byggingu og brunabótamat liggur ekki fyrir.
Kemur það í hlut kaupanda að greiða skipulagsgjald 0,3% af verðandi brunabótamati eignar, þegar þess verður krafist.
Húsfélag hefur ekki verið stofnað og kemur það í hlut nýrra eigenda að stofna húsfélag.


Nánari upplýsingar veita:
Knútur Bjarnason, löggiltur fasteignasali, s: 775-5800 / knutur@helgafellfasteignasala.is
Kristján Þór Sveinsson, löggiltur fasteignasali, s: 898-6822 / kristjan@helgafellfasteignasala.is  

----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells

- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr.  92.380,- m/vsk.

Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga.  Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.

img
Knútur Bjarnason
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Helgafell fasteignasala ehf.
Stórhöfði 33, 2. hæð, 110 Reykjavík
Helgafell fasteignasala ehf.

Helgafell fasteignasala ehf.

Stórhöfði 33, 2. hæð, 110 Reykjavík
img

Knútur Bjarnason

Stórhöfði 33, 2. hæð, 110 Reykjavík
Helgafell fasteignasala ehf.

Helgafell fasteignasala ehf.

Stórhöfði 33, 2. hæð, 110 Reykjavík

Knútur Bjarnason

Stórhöfði 33, 2. hæð, 110 Reykjavík