Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1961
109 m²
4 herb.
1 baðherb.
2 svefnh.
Þvottahús
Sameiginl. inngangur
Lyfta
Opið hús: 16. nóvember 2025
kl. 15:00
til 15:30
Opið hús: Sólheimar 23, 104 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 06 01. Eignin verður sýnd sunnudaginn 16. nóvember 2025 milli kl. 15:00 og kl. 15:30.
Lýsing
Fasteignasalan Bær og Páll Guðjónsson lögg. fasteignasali kynna: Falleg og rúmgóð 3-4 herbergja endaíbúð á sjöttu hæð í góðu lyftuhúsi við Sólheima 23, 104 Reykjavík. Eignin var endurnýjuð fyrir 8 árum. Skipt var út eldhúsinnréttingu, gólfefnum, fataskápum, hurðum og baðherbergi endurnýjað, svölum lokað með svalalokun. Frábært útsýni á þrjá vegu. Rúmgott sameiginlegt bílastæði með 8 hleðslustöðvum fyrir rafmagnsbíla. Snyrtileg sameign. Í húsinu er starfandi húsvörður.
Nánari upplýsingar:
Komið er inn frá sameign inn í litla forstofu með fataskáp. Eldhús með eikarinnréttingu, tengt fyrir uppþvottavél. Rúmgóður gangur / hol með litlum geymsluskáp. Baðherbergi með ljósri innréttingu, upphengt salerni, sturta með öryggisgleri, flísalagt í hólf og gólf. Hjónaherbergi með glugga á tvo vegu ásamt rúmgóðum fataskápum. Þvottahús / geymsla er innan íbúðar með hillum. Barnaherbergi með skáp. Björt og rúmgóð stofa og borðstofa með útgengi út á yfirbyggðar suður svalir. Hægt er að stúka borðstofu af fyrir þriðja svefnherbergið. Á gólfum íbúðar er harðparket á eldhúsi, gangi, stofu, borðstofu og svefnherbergjum en flísar á forstofu og baðherbergi. Á svalagólfi eru snyrtilegar viðarflísar. Í sameign er sér geymsla íbúðar ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu, þvottahúsi og þurrkherbergi. Tvær lyftur eru í sameign. Ágætt aðgengi fyrir fatlaða. Stutt er í leik-, grunn- og framhaldsskóla og helstu þjónustu eins og verslunarkjarna í Skeifunni og Glæsibæ. Göngufæri er í útivistar- og íþróttasvæði í Laugardal.
Húseignin hefur fengið gott viðhald í gegnum árin:
2017 - Gluggar endurnýjaðir.
2022 - Skipt var um skólp og dren.
2024 - Bílastæði endurbætt.
2024 - Smærri lyftan endurnýjuð.
2025 - Anddyri lagfært og endurbætt.
Nánari upplýsingar gefur Páll Guðjónsson í síma: 699 4994 eða á netfangið pall@fasteignasalan.is

Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
26. apr. 2017
36.450.000 kr.
38.500.000 kr.
109 m²
353.211 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025