Lýsing
Miklaborg kynnir: Vel skipulagða 3ja herbergja íbúð á 4. hæð í lyftufjölbýli með rúmgóðum svölum í suðvestur og stæði í bílageymslu. Fallegt útsýni til suðurs frá svölum. Allar upplýsingar um eignina veitir Jón Rafn fasteignasali í síma 695-5520 eða jon@miklaborg.is .Birt stærð eignarinnar skv. fasteignaskrá HMS er 95,5 fm, íbúðin er 87 fm og geymsla á jarðhæð 8,5 fm.
Íbúðin afhendist með full frágenginni svalalokun sem verið er að standsetja. Frábær viðbót við íbúðina með miklu verðgildi.
*EIGNIN ER LAUS VIÐ KAUPSAMNING*
Nánari lýsing: Gólfefni eru harðparket á alrými og herbergjum, flísar í forstofu, baðherbergi og þvottahúsi.
Forstofa er rúmgóð, með glugga og góðum fataskáp.
Eldhús með L-laga innrétting úr eik með efri og neðri skápum, keramik helluborð, stálofn og stálviftu. Stáluppþvottavél og stál ísskápur fylgja. Eyja er laus með hvítum skúffum. Eldhús er opið við stofu og borðstofu.
Stofa/borðstofa er björt með glugga í vestur og útgengi út á rúmgóðar suðvestur svalir sem verið er að setja svalalokun á en íbúðin afhendist þannig og framkvæmd að fullu greidd af seljanda.
Hjónaherbergi er rúmgott með fataskáp.
Barnaherbergi með fataskáp.
Baðherbergi er flísalegt í hólf og gólf með baðkari með sturtuaðstöðu. Eikarinnrétting með speglaskáp fyrir ofan, upphengt salerni og handklæðaofn.
Þvottahús er innan íbúðar, með innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara. Skolvaskur á vegg.
Í sameign:
Geymsla íbúðarinnar er á jarðhæð í sameign ásamt sameiginlegri hjóla-og vagnageymslu.
Stæði í bílageymslu er merkt íbúðinni.
Nánari upplýsingar veitir Jón Rafn fasteignasali í síma 695-5520 eða jon@miklaborg.is