Upplýsingar
94,5 m²
3 herb.
1 baðherb.
2 svefnh.
Þvottahús
Útsýni
Sérinngangur
Hjólastólaaðgengi
Bílastæði
Lyfta
Lýsing
Eignamiðlun kynnir:
Eignamiðlun auglýsir 2ja - 5 herbergja íbúðir í nýbyggingu við Grásteinsmýri 1, 225 Álftanesi. Um er að ræða 30 íbúðir, stærðir frá 63,2 fm - 144,8 fm. Allar íbúðir með bílastæði í lokuðu bílastæðahúsi. Afhending íbúða er í apríl 2026 eða fyrr. Fyrir þessar íbúðir er í boði 20% hlutdeild ÖXAR20 sjá nánar hér, leitið nánari upplýsinga hjá sölumanni. Heimasíða fyrir verkefnið hérÍbúð merkt 208 - 3ja herbergja 94,5 fm íbúð á annari hæð með tveim herbergjum og rúmgóðum svölum með fallegu útsýni. Rúmgott svefnherbergi og minna barnaherbergi, baðherbergi flísalagt og sér þvottahús með atstöðu fyrir þvottavél og þurrkara, eldhús með stórri vinnueyju opið inn í borðstofu og stofu. Bílastæði í bílakjallara merkt B17. Virkilega vel skipulögð íbúð. Athugið að myndir af íbúðum eru tölvuteiknaðar og eiga ekki alltaf við allar íbúðir.
Nánari upplýsingar veitir: Gunnar Bergmann löggiltur fasteignasali í síma 839-1600 eða gunnarbergmann@eignamidlun.is
Nánari lýsing:
Komið er inn forstofu með fataskápum.
Baðherbergi: Baðherbergi með sturtuklefa. Handlaug, handklæðaofn og upphengt salerni. Flísar á gólfum og veggjum. Aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara inn á sér þvottahúsi inn af eldhúsi.
Eldhús: Eldhúsinnrétting með góðu skápaplássi frá Axis. Ofn í vinnuhæð, góð vinnuaðstaða. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél.
Svefnherbergi: Rúmgott með góðu skápaplássi. Barnaherbergi með skápum.
Stofa/ borðstofa: Rúmgóð setustofa og borðstofa opið inn í eldhús. Gengið er út á sérafnotarétt út frá stofu, stór rennihurð.
Bílakjallari og geymsla: Bílastæði í lokuðum bílakjallara fylgir íbúðinni ásamt 4,7 fm geymslu.
Íbúðirnar verða afhentar án gólfefna, nema á votrýmum sem verða flísalögð. Eldhúsinnréttingar eru sérsmíðuð af vandaðri gerð frá Axis.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati. (0,4% ef um er að ræða fyrstu eign)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr kauptilboði.
Eignamiðlun ehf. - Grensásvegur 11, 108 Reykjavík - gunnarbergmann@eignamidlun.is - Gunnar Bergmann Jónsson löggiltur fasteignasali.
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook