Upplýsingar
Byggt 2025
94,5 m²
3 herb.
1 baðherb.
2 svefnh.
Þvottahús
Sérinngangur
Bílastæði
Lyfta
Lýsing
Eignamiðlun kynnir:
Eignamiðlun auglýsir 2ja - 5 herbergja íbúðir í nýbyggingu við Grásteinsmýri 1, 225 Álftanesi. Um er að ræða 30 íbúðir, stærðir frá 63,2 fm - 144,8 fm. Allar íbúðir með bílastæði í lokuðu bílastæðahúsi. Afhending íbúða er í apríl 2026 eða fyrr. Fyrir þessar íbúðir er í boði 20% eignahlutdeild ÖXAR20 sjá nánar hér, leitið nánari upplýsinga hjá sölumanni. Heimasíða fyrir verkefnið hérÍbúð merkt 108 - 3ja herbergja 94,5 fm íbúð á fyrstu hæð með tveim herbergjum og rúmgóðum sérafnotarétti. Rúmgott svefnherbergi og minna barnaherbergi, baðherbergi flísalagt og sér þvottahús með atstöðu fyrir þvottavél og þurrkara, eldhús með stórri vinnueyju opið inn í borðstofu og stofu. Bílastæði í bílakjallara merkt B16. Virkilega vel skipulögð íbúð. Athugið að myndir af íbúðum eru tölvuteiknaðar og eiga ekki alltaf við allar íbúðir.
Nánari upplýsingar veitir: Gunnar Bergmann löggiltur fasteignasali í síma 839-1600 eða gunnarbergmann@eignamidlun.is
Nánari lýsing:
Komið er inn forstofu með fataskápum.
Baðherbergi: Baðherbergi með sturtuklefa. Handlaug, handklæðaofn og upphengt salerni. Flísar á gólfum og veggjum. Aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara inn á sér þvottahúsi inn af eldhúsi.
Eldhús: Eldhúsinnrétting með góðu skápaplássi frá Axis. Ofn í vinnuhæð, góð vinnuaðstaða. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél.
Svefnherbergi: Rúmgott með góðu skápaplássi. Barnaherbergi með skápum.
Stofa/ borðstofa: Rúmgóð setustofa og borðstofa opið inn í eldhús. Gengið er út á sérafnotarétt út frá stofu, stór rennihurð.
Bílakjallari og geymsla: Bílastæði í lokuðum bílakjallara fylgir íbúðinni ásamt 4,7 fm geymslu.
Íbúðirnar verða afhentar án gólfefna, nema á votrýmum sem verða flísalögð. Eldhúsinnréttingar eru sérsmíðuð af vandaðri gerð frá Axis.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati. (0,4% ef um er að ræða fyrstu eign)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr kauptilboði.
Eignamiðlun ehf. - Grensásvegur 11, 108 Reykjavík - gunnarbergmann@eignamidlun.is - Gunnar Bergmann Jónsson löggiltur fasteignasali.
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook