Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Aðalheiður Karlsdóttir
Upplýsingar
130 m²
3 herb.
2 baðherb.
1 svefnh.
Bílskúr
Lýsing
SPÁNAREIGNIR KYNNIR: *GLÆSILEG 3JA HERB. ÍBÚÐ MEÐ ÚTSÝNI YFIR LAS RAMBLAS GOLFVÖLLINN OG SUNDLAUGARGARÐINN* *SÉR INNGANGUR OG BÍLSKÚR* *STÓRAR SUÐURSVALIR* *AFHENDIST MEÐ HÚSGÖGNUM*
Hér er tækifæri til að eignast glæsilega íbúð á Las Ramblas á frábæru verði! Rúmgóð og vel skipulögð eign með einstöku útsýni á hinum vinsæla Las Ramblas golfvelli, um 50 mín akstur suður af Alicante. Eignin er á einni hæð, og með sameiginlegum sundlaugargarði.
Allar upplýsingar gefur:
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, Sími 0034 615 112 869, berta@spanareignir.is
Stofa, borðstofa og eldhús eru í opnu björtu rými, með góðu útgengi út á stórar svalir sem snúa í suður, með útsýni yfir sundlaugina og golfvöllinn. Svefnherbergi eru tvö, bæði með sér baðherbergi. Eigninni fylgir bílskúr.
Eignin er vel staðsett í göngufæri við Klúbbhúsið á Las Ramblas Golfvellinum. Einnig eru fjölmargir góðir golfvellir í næsta nágrenni, t.d. Campoamor, Las Colinas, Villamartin, La Finca, Lo Romera, Roda Golf, La Marquesa og fleiri.
Ca. 10 mín akstur er niður á ströndina og ca. 5 mín. akstur í nýju verslunarmiðstöðina La Zenia Boulevard.
Gott úrval verslana og veitingastaða er í næsta nágrenni, auk þess er stutt í heilsugæslu, tennisvöll, fótboltavöll, crazy golf ofl. Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.
Verð: 210.000 Evrur. (ISK 30.500.000,- miðað við gengi 1E=145ISK)
Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.
Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka með mjög hagstæðum vöxtum.
Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á www.spanareignir.is
Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.
LAS RAMBLAS GOLFVÖLLURINN
Þennan golfvöll þurfa allir alvörugolfarar að prófa amk. einu sinni um ævina. Þessi golfvöllur er ekki allra, annað hvort hatar þú völlinn eða elskar hann. Allavega er þetta golfvöllurinn fyrir golfara sem vilja taka áhættur, en geta líka valið auðveldari leiðir.
Völlurinn var opnaður árið 1991, hannaður af Pepe Gancedo. Hann er ca. 5.800 metra langur og par 72. Hönnun vallarins er sérlega skemmtileg, holurnar fjölbreyttar og bjóða upp á ýmis erfiðleikastig.
Þennan golfvöll er bæði hægt að fara á golfbíl eða ganga hringinn, sem skapar fjölbreytni í upplifun.
Las Ramblas golfvöllurinn þykir einstaklega fallegur, með mikla náttúru og grænan gróður. Tré og gil eru stundum fyrir golfaranum, en þegar maður sigrast á vellinum skapar það tilfinninguna um að langa að koma strax aftur.
En eitt er víst, að ef þú hefur einu sinni spilað Las Ramblas er það völlur sem þú manst alltaf eftir.
Eiginleikar: útsýni, air con, sundlaug, suður svalir, bílskúr, golf, endursölueign,
Svæði: Costa Blanca, Las Ramblas Golf, La Fuente,