Lýsing
Miklaborg kynnir: Bjarta og vel skipulagða 4 herbergja íbúð á 2. hæð með glæsilegt útsýni. Tvennar svalir.
Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, borðstofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og þvottaherbergi.
Nánari upplýsingar veitir Kjartan Ísak Guðmundsson löggiltur fasteignasali í síma 663-4392 eða kjartan@miklaborg.is
Nánari lýsing
Forstofa er með parket-flísum á gólfi og góðum fataskáp.
Stofa og borðstofa eru saman í opnu og björtu rými með parket á gólfi og útgengt úr borðstofu út á svalir.
Svefnherbergi eru þrjú, öll með parket á gólfum.
Eldhús er með flísum á gólfi, góðri hvítri innréttingu, stæði fyrir uppþvottavél og ísskáp, bakaraofn í vinnuhæð og frábært útsýni.
Baðherbergi flotað gólf og flísar á veggjum , baðkar með sturtuaðstöðu, innréttingu undir vask, skápur og handklæðaofn.
Þvottahús er við hlið eldhúss, þar erstæði fyrir þvottavél og þurrkara. Útgengt er á aðrar af tveimur svölum úr þvottahúsi.
Geymsla er staðsett í kjallara sameignar.
Hjóla/vagnageymsla er í sameign á fyrstu hæð.
Nánari upplýsingar veitir Kjartan Ísak Guðmundsson löggiltur fasteignasali í síma 663-4392 eða kjartan@miklaborg.is