Lýsing
Miklaborg kynnir: Glæsileg og mikið endurnýjuð 3ja herbergja íbúð á 2. hæð með sérmerktu bílastæði við Laugaveg 39 í 101 Reykjavík. Eignin er skráð 123,3, með henni fylgir sérmerkt bílastæði á baklóð og rúmgóð 23,3 fm geymsla í kjallara. Eignin er í vel viðhöldnu fjölbýlishúsi sem var byggt árið 1942. Eignin skiptist í anddyri, tvö rúmgóð svefnherbergi, bjarta stofu, tvö baðherbergi, eldhús með eyju, svalir og bílastæði. Vel staðsett eign á eftirsóttum stað í 101 Reykjavík þar sem stutt er í verslanir, þjónustu, kaffihús, veitingastaði og sundlaug.
Gengið er inn í flísalagða forstofu með innbyggðum fataskáp. Loft er klætt með hljóðdempandi hnotuplötum og fallegri innbyggðri central lýsingu.
Íbúðin skiptist í:
- Tvö rúmgóð svefnherbergi með eikarparketi og sérsmíðuðum innréttingum.
- Stofu með eikarparketi og hnotupanil á vegg.
- Tvö baðherbergi flísalögð í hólf og gólf, bæði með gólfhita. Annað með „walk-in“ sturtu og Ifø innréttingu frá Tengi, hitt með þvottaaðstöðu.
- Eldhús frá HTH með innbyggðum tækjum, fallegri eldhúseyju úr límtré og helluborði.
- Borðstofu með útgengi á svalir sem snúa í norður að friðsælli baklóð þar sem bílastæðið er.
Húsið hefur hlotið mikla endurnýjun, undanfarin ár m.a.:
- 2015 Skipt um þak.
- 2016 Stigagangur málaður
- 2016-2018 Múrviðgerðir að utan; fraamhlið og bakhlið og svalir steyptar up og nýtt handrið og niðurföll endurnýjuð þar sem þurfti.
- 2018 Gluggar málaðir og svalahurðir.
- 2019 Ný teppi á stigagang og stigagangur málaður þar sem þurfti eftir breytingar. Aðalanddyri flísalagt.
- 2020 Klæðning á svölum á 4. hæð.
- 2021 Ný ljós með hreyfiskynjurum í stigagng og kjallara.
- 2021 Skyggnið fyrir ofan 1. hæðina endurnýjað en viðgerð ekki lokið.
- 2022 Þak þvegið og málað. Hiti íbúða sameinað á einn mæli ofl. smálegt.
- 2023 vinna við skyggnið klárað.
Eignin er á vinsælum og eftirsóttum stað í miðborginni, þar sem stutt er í allar helstu verslanir, þjónustu, kaffihús, veitingastaði og sundlaug.
Fyrir nánari upplýsingar eða bóka skoðun:
Steinn Andri Viðarsson löggiltur fasteignasali í síma 775-1477 eða Steinn@miklaborg.is
Kristín Avon Gunnarsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 772-2959 eða kristinavon@miklaborg.is