Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Bjarklind Þór Olsen
Vista
sumarhús

Hofsvík 7

805 Selfoss

49.900.000 kr.

676.152 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2344320

Fasteignamat

2.310.000 kr.

Brunabótamat

0 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
73,8 m²
svg
3 herb.
svg
2 baðherb.
svg
2 svefnh.

Lýsing

Borgir  fasteignasala kynnir eignina Hofsvík 7, 805 Selfoss, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 234-4320 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.

Eignin Hofsvík 7 er skráð sem sumarhús í Grímsnesi nánar tiltekið í Hraunborgum í landi Sjómannadagsráðs um 45 mín akstur frá Reykjavík. Birt stærð 73.8 fm.

Um er að ræða hús sem er framleitt af Citic Construction sem er einn af stærstu framleiðendum á húsum í heimi og er stálgrindar einingahús með tveimur svefnherbergjum, tveimur baðherbergjum, eldhúsi/borðstofu/stofu, mikilli lofthæð og gólfsíðum gluggum og fallegu útsýni. Hiti í gólfi frá Danfoss. Halogen ljós í loftinu. Pallur með skjólvegg. Öryggisgler er í öllu húsinu. Húsið er sett saman af Gunnarsfell verktökum. Byggingarfræði, neysluvatnslagnir og fráveitulagnir er frá Glóra, Studio F sá um arkitektúr og Akkur sf sá um raflagnir.
Hægt er að sjá allt um húsið á gogg.is " Teikningar af byggingum" Rafmagns heitur pottur og sauna. 
 
​​​​​​Nánari upplýsingar veita:
Jóhanna M Jóhannsdóttir Löggiltur fasteignasali, johanna@borgir.is sími 8200788 
Bjarklind Þór Löggiltur fasteignasali, bjarklind@borgir.is sími 6905123


​​​​​​Nánari lýsing
Inngangur: Gengið beint inní stofu/borðstofu sem er með plast parketi á gólfi, gólfsíðum gluggum sem snúa til suðurs, mikilli lofthæð og fallegu útsýni. 
Eldhús/borðstofa: Innrétting með tengi fyrir bakarofni, helluborð af gerðinni Vatti, vifta og vaskur. 
Hjónaherbergi: Með plastparketi, gólfsíðum gluggum og hurð út á pall, innaf herbergi er baðherbergi með sturtuklefa, baðinnréttingu með vask og upphengt salerni. Físar á gólfi og veggjum. 
Herbergi: með plastparketi. 
Baðherbergi: Baðinnrétting og upphengt salerni. Gólfið er flísalagt og veggir upp í loft, sturtuklefi.  
Skriðkjallari: Undir öllu húsinu 
Byggingarlýsing:
Húsið er frísdundahús sem er að hluta samsett einingahús á steyptum sökkli.
Undirstaða eru steyptir veggir og er þar lagnakjallari.
Gólfið er gert úr stálrömmum með 45x200 gólfbitum, einangrað með 200 steinull. Neðan á gólfbita kemur rakavörn 0,2mm og 9mm krossviður 22x45mm lagnagrind og 9mm krossviður. Ofaná gólfbita kemur 0,2mm rakavörn, 22mm gólfplötur, 15mm gólfhiti, dúkur og efsta lag er gólfklæðning að vali verkkaupa. 
Útveggir eru gerðir úr stálgrind með áfastri trégrind 45x145mm, einangraðir með 145mm steinull, klædd að innan með 0,2mm rakavarnarlagi, lagnagrind 45x45, 9mm krossvið/obs plötum og 13mm gifsplötum. Að utan er 9mm krossviður (opið fyrir útöndun) sem vindþétting, loftbil 20mm og liggjandi 15mm vatnsklæðning.
Þak yrsta lag er tjörupappi (tvöfalt lag). Undir tjörupappa kemur 18mm krossviður, loftunarlistar 21x45 og sperrur sem eru 45x225mm. Á milli sprerra kemur 225mm steinull (þakull) með vindpappa, rakavarnalag 0,22mm og neðan á sperrur koma rafmagnsgrind 34x45 og klæðning (t.d panill) að vali húseiganda.
Innveggir eru trégrind 45x70mm einangraðir með 50mm steinull, klæddir með 12mm krossviðsplötu og 13mm fifsplötu.
Gluggar og hurðir eru úr tré með k-gleri. Loftbil milli glerja er 12mm í föstum körmum en 9mm í opnanlegum fögum og hurðum.
Lagnir eru hefðbundnar, upphitun er hitaveita í gólfhita. 
Eldvarnir og eldvarnamerkingar eru samkvæmt bygginga-og brunavarnareglugerð. Flóttaleiðir eru um útihurð og hurð út á pall, björgunarop skulu vera samkv. grein 9,5,5 í byggingarreglugerð 112/2012 frá 16 apríl 2013. 

Annað/Umhverfi
Lóðin er vel staðsett með fallegu útsýni.
Lóðarleigusamningur í gildi til 31.ágúst 2067 og lóðarleiga er rúmlega 134.000.- á ári.
Sumarhúsafélagsgjald er rúmlega 20.000.- á ári 
Öryggishlið er inn á svæði og öflugt sumarhúsafélag.
​​​​​Búið er að greiða fyrir heitt og kalt vatn ásamt rafmagni. 
Rotþró í jörðu. Vegur og bílastæði. 
​​​​​​Stutt er í allskyns afþreyingu, útivstarsvæði og þjónustu. Á svæðinu eru t.d. sundlaug með heitum potti og eimbaði, hjólhýsastæði, æfingagolfvöllur, minigolf, sparkvöllur, leiksvæði fyrir börn og verslun sem starfrækt er að sumarlagi. Stærri golfvöllur, verslanir og margt fleira er svo í nokkura mínútna akstursfjarlægð

 

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.
Vill Borgir því skora væntanlega kaupendur á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bæra sérfræðinga um nánari skoðun.   

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 70.000 mvsk.

Borgir fasteignasala

Borgir fasteignasala

Suðurlandsbraut 18 3.hæð, 108 Reykjavík
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
24. ágú. 2018
2.820.000 kr.
30.000.000 kr.
73.8 m²
406.504 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Borgir fasteignasala

Borgir fasteignasala

Suðurlandsbraut 18 3.hæð, 108 Reykjavík
phone