Lýsing
Um er að ræða rúmgóða og vel skipulagða fjögurra herbergja 89.1 fm íbúð á jarðhæð við í Skaftahlíð 26 sem að er fjórbýlishús.
Sérinngangur er í íbúðina og er útgengt úr stofu beint út í garð þar sem að er hellulögð verönd.
Frábær staðsetning miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu þar sem að stutt er í leikskóla, skóla, alla þjónustu og stofnbrautir.
Bílastæði íbúðar er beint fyrir framan innangang í íbúð.
Birtar stærðir skv. Þjóðskrá Íslands:
Íbúð er 89.1 fm merkt 01-00-01 og sérgeymsla fylgir íbúð í sameign.
Nánari upplýsingar um eign:
Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s. 6900 820 eða sveinn@landmark.is
FÁÐU SENT SÖLUYFIRLIT YFIR EIGN STRAX HÉR.
Eignin skiptist í:
Sérinngangur er í íbúð, forstofu, hol/gang, stofu/borðstofu, eldhús, tvö svefnherbergi, lítið herbergi/geymsla sem gæti nýst sem skrifstofa, baðherbergi og sérgeymslu í sameign.
Sameiginlegt þvottaherbergi í sameign ásamt rúmgóðum gangi og hitaherbergi sem að mætti nota sem sameiginlega geymslu.
Nánari lýsing á eign:
Sérinngangur er í íbúð og þar er komið inn í aflokaða forstofu með fatahengi.
Herbergjagangur þaðan sem að gegnið er í önnur rými íbúðar.
Stofa og borðstofa er opið og bjart rými og er útgengt beint út í garð úr stofu og þar er hellulögð verönd.
Eldhús er innaf stofunni og er snyrtileg eldhúsinnrétting með efri og neðri skápum, helluborð í innréttingu og gert er ráð fyrir uppþvottavél og einföldum ísskáp í innréttingu.
Tvö rúmgóð svefnherbergi og eru fataskápar í báðum herbergjum.
Lítið herbergi er í enda herbergjagangs sem að gæti nýst sem skrifstofa eða geymsla, gluggi er á herbergi.
Baðherbergi er snyrtilegt með flísum á gólfum og veggjum, nýleg innrétting er undir vask með hirslum, sturtuklefi í enda baðherbergis, gluggi á baðherbergi.
Sérgeymsla íbúðar er í sameign.
Innaf sameiginlegum gangi af sameign er sameiginlegt þvottaherbergi og hitaherbergi sem að mætti nota sem sameiginlega geymslu.
Gólfefni: Parket og flísar á gólfum eignar.
Framkvæmdir sem hafa átt sér stað á húsi og íbúð í gegnum tíðina:
2003 / 2004: Bílaplan hellulagt og sett snjóbræðslukerfi.
2008/ 2009: Drenað í kringum húsið.
2010: Þakjárn endurnýjað.
2011: Garðveggur settur upp.
2016 / 2017: Skipt um gler og nokkra glugga í íbúð.
2019: Þak málað
2020:
-Múr undir garðvegg endurnýjaður.
-Skipt um rennurör frá þaki og niður í jörð og sett ný niðurföll á þremur svölum
-Múrviðgerðir á húsveggjum og tröppur og gólf við inngang múrað uppá nýtt.
-Málun steinflata og málun á húsi.
-Svalahandrið löguð. Málun á gluggum og þakkanti og ný útiljós sett upp.
2025: Múrviðgerðir á kanti í kringum stofuglugga íbúðarinnar, gryfju og tröppum hússins.
-Vegna mikillar sölu undanfarið þá vantar mig allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og ég kem og met eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s: 6900.820 eða sveinn@landmark.is
Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 2.700 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustusýslugjald: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat