Upplýsingar
Byggt 1969
85,6 m²
4 herb.
1 baðherb.
1 svefnh.
Þvottahús
Sameiginl. inngangur
Laus strax
Opið hús: 10. janúar 2026
kl. 12:30
til 13:00
Opið hús: Hörðaland 22, 108 Reykjavík, Íbúð merkt: 11 02 01. Eignin verður sýnd laugardaginn 10. janúar 2026 milli kl. 12:30 og kl. 13:00.
Lýsing
-Góð staðsetning í Fossvoginum
-Stór garður
-Suðursvalir
-Laus strax
Íbúðin er skráð fjögurra herbergja og 85,6 fm samkvæmt HMS.
Hún er á miðhæð í sex íbúða stigagangi. Fá þrep eru upp frá anddyri upp að íbúð þar sem jarðhæðin er niðurgrafin.
Eignin hefur fengið gott viðhald á ytra byrði og ber þar helst að nefna:
-Nýlegir gluggar og svalahurð
-Steinn nýlega múrviðgerður og málaður
-Nýlegt þak
Íbúðin býður upp á marga möguleika.
-Hægt er að opna inn í eldhúsið til að skapa stærra alrými.
-Tvö barnaherbergi hafa verið sameinuð í eina betri stofu.
Einföld framkvæmd með einum millivegg endurvekur fyrri herbergisskipan.
Nóg af bílastæðum eru fyrir utan á bílaplani og komið hefur til umræðu að sérmerkja stæði fyrir íbúðir.
Ekki þarf að fara yfir götu til að sækja skóla sem er í göngufæri.
Íbúðin stendur tóm og er laus til afhendingar við kaupsamning.
Nánari upplýsingar veitir:
Ævar Jóhanns Lgf. s: 861-8827 / aj@palssonfasteignasala.is
Nánari lýsing íbúðar:
Gengið er inn í parketlagða forstofu sem tengist beint við hol.
Á vinstri hönd er bjart opið rými sem áður voru tvö barnaherbergi.
Á hægri hönd er gangur með góðu skápaplássi.
Inn af gangi er stórt og bjart hjónaherbergi, parketlagt með skápavegg.
Baðherbergi er flísalagt á gólfi og vatnsálagsstöðum. Útbúið baðkari með sturtuhaus, spegli með lýsingu, skápum, vask og salerni. Þar er einnig tengi fyrir þvottavél.
Eldhús er parketlagt og með eldavél. Innrétting er hvít með rennihurðum, bæði efri og neðri skápar.
Stofa er stór og björt og parketlögð. Úr henni er útgengt út á stórar svalir sem snúa í suður með ágætis útsýni yfir garðinn og víðar.
Sérgeymsla er í kjallara.
Þar er einnig sameiginleg hjólageymsla, þvottahús og þurrkherbergi sem er vel viðhaldið og snyrtilegt.
Allt sem Fossvogsdalurinn hefur upp á að bjóða nánast í bakgarðinum - náttúra, útivist og leikvellir fyrir stóra og smáa.
Körfuboltavellir, frisbee golf, tennisvellir, strandblak, leikvellir, aparóla og fleira.
Elliðaárdalur einnig í göngufæri.
-Athygli er vakin á því að einhverjar myndir hafa verið sviðsettar með tölvutækni til þess að gefa kaupendum hugmynd að nýtingu rýmis þar sem eignin er tóm.
www.eignavakt.is
www.verdmat.is
Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.