Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Þórir Helgi Sigvaldason
Katla Hanna Steed
Jórunn Skúladóttir
Þórunn Pálsdóttir
Kristín Rós Magnadóttir
Vista
svg

2194

svg

1941  Skoðendur

svg

Skráð  9. jan. 2026

fjölbýlishús

Norðurbrú 5 íb 307

210 Garðabær

79.900.000 kr.

1.000.000 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2265368

Fasteignamat

68.150.000 kr.

Brunabótamat

44.010.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2004
svg
79,9 m²
svg
2 herb.
svg
1 baðherb.
svg
1 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Bílastæði
svg
Lyfta

Lýsing

Háborg fasteignasala og Jórunn lögg. fasteignasali kynna í einkasölu, bjarta fallega og rúmgóða 2ja herbergja íbúð með stæði í lokaðri bílageymslu (B21) í vönduðu lyftuhúsi við Norðurbrú í Garðabæ. Frábær staðsetning þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, skóla og leikskóla.

Birt stærð eignar er 79.9 fm samkvæmt HMS, þar af er 7,2 fm geymsla. Fasteignamat eignar er kr. 74.500.000,-

Nánari lýsing á eigninni:
Þegar komið er inn í forstofu sem er opin blasir við rúmgóð, falleg, björt stofa með stórum gluggum, með útgengi út á svalir. Eldhúsið er hálf opið með borðkróki. Eldhúsið er hannað sitt hvoru megin við umferðarrýmið í eldhúsi með fallegri dökkri innréttingu. Í eldhúsi er opinn borðkrókur inn í stofu. Svefnherbergið er mjög rúmgott og með góðum skápum. Baðherbergið er með baðkari og upphengdri sturtu. Á baði er góð snyrtiaðstaða, skápur undir handlaug, skápur og spegill fyrir ofan handlaug. Á baði er góð aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara.  Í forstofu eru fataskápar. 

Um er að ræða einstaklega glæsilega íbúð á frábærum stað. Í byggð þar sem ekki eru mjög háar byggingar en góðir göngustígar og góð þjónusta í hverfinu. 

Húsgjöld eignar eru 28.500- kr. á mánuði og þá er innifalinn allur almennur rekstur húsfélags, allur hiti, rafmagn í sameign, þrif sameignar, húseigendatrygging, framkvæmdasjóður og þjónustukaup vegna reksturs húsfélags. Ekki eru fyrirhugaðar eða yfirstandandi framkvæmdir í húsfélaginu.

Húsið var byggt af BYGG árið 2004, steinsteypt  og hefur fengið gott og reglulegt viðhald, bílastæði í sameignilegum bílakjallara og fyrir framan hús og sameignileg lóð mjög snyrtileg. Sameign hússins er björt og snyrtileg. Húsið er á lóð með húsunum Strandvegur 12-14-16 og Norðurbrú 1. Einnig Strandvegur  18-20 og Norðurbrú 3-5. 
Strandvegur 18-20, Norðurbrú 3-5 eru fjórir sambyggðir þriggja hæða stigagangar með kjallara samtals 37 íbúðir. Í kjallaranum er auk þess 32 stæði í bílageymsla.

Nánari upplýsingar veitir Jórunn Skúladóttir lögg. fasteignasali, í síma 845-8958, eða tölvupóstur jorunn@haborg.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. 
 

img
Þórunn Pálsdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Háborg fasteignasala
Grensásvegur 1, 108 Reykjavík
Háborg fasteignasala

Háborg fasteignasala

Grensásvegur 1, 108 Reykjavík
phone
img

Þórunn Pálsdóttir

Grensásvegur 1, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
18. maí. 2022
50.200.000 kr.
59.000.000 kr.
79.9 m²
738.423 kr.
20. jan. 2021
45.100.000 kr.
47.500.000 kr.
79.9 m²
594.493 kr.
20. nóv. 2015
25.800.000 kr.
29.600.000 kr.
79.9 m²
370.463 kr.
27. ágú. 2014
23.450.000 kr.
27.000.000 kr.
79.9 m²
337.922 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Háborg fasteignasala

Háborg fasteignasala

Grensásvegur 1, 108 Reykjavík
phone

Þórunn Pálsdóttir

Grensásvegur 1, 108 Reykjavík