Lýsing
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Falleg og vel skipulögð 109,7 m2, 4ra herbergja endaíbúð með sérinngangi á jarðhæð við Tröllateig 51 í Mosfellsbæ. Eignin er skráð 109,7 m2, þar af íbúð 101,7 m2 og geymsla 8 m2. Eignin skiptist í þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, forstofu, eldhús, stofu og borðstofu. Sérgeymsla í sameign. Svalir í norðurátt með fallegu útsýni. Góð staðsetning miðsvæðis í Mosfellsbæ. Stutt í skóla, íþróttasvæði, verslun, heilsugæslu og alla helstu þjónustu.
Skv. upplýsingum frá eiganda og húsfélaginu þá má setja upp timburverönd fyrir framan hús líkt og hefur verið gert fyrir framan íbúð 201. Eignin hefur fengið talsverðar endurbætur en nýlega var eldhús endurnýjað, lagt nýtt parket, nýir fataskápar og nýjar innihurðir. Seljandi mun klára að setja upp gólflista, setja upp hurð á þvottahús og laga hurðargat í forstofu fyrir afhendingu.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.
Nánari lýsing:
Forstofa er með fataskápum og parketi á gólfi.
Eldhús er með fallegri hvítri innréttingu og parketi á gólfi. Í innréttingu er ofn, helluborð og vaskur. Gert er ráð fyrir ísskáp og uppþvottavél í innréttingu.
Stofa/borðstofa er rúmgóð og með parketi á gólfi. Úr stofu er útgengt á svalir í norðurátt.
Svefnherbergi nr. 1 (Hjónaherbergi) er með fataskápum og parketi á gólfi.
Svefnherbergi nr. 2 er með fataskápum og parketi á gólfi.
Svefnherbergi nr. 3 er með fataskápum og parketi á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt og með ljósri innréttingu, vegghengdu salerni, baðkari, sturtuklefa og handklæðaofni.
Þvottahús er með flísum á gólfi. Tengi er fyrir þvottavél og þurrkara
Sérgeymsla er í sameign. Skráð 8,0 m2.
Íbúðinni fylgir hlutdeild að sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu.
Verð kr. 84.900.000-.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.