Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Guðmundur Th Jónsson
Elín D. Guðmundsdóttir
Sigríður Kjartansdóttir
Vista
svg

119

svg

91  Skoðendur

svg

Skráð  15. jan. 2026

fjölbýlishús

Grettisgata 4

101 Reykjavík

69.900.000 kr.

1.030.973 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2501309

Fasteignamat

69.900.000 kr.

Brunabótamat

40.800.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 2018
svg
67,8 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Lyfta
Opið hús: 19. janúar 2026 kl. 17:00 til 17:30

Grettisgata 4 - Glæsileg 3ja herbergja íbúð á 2. hæð meeð stórum suðursvölum í nýlegu fjölbýlishúsi með lyftu - Opið hús mánudaginn 19. janúar á milli kl. 17.00 og 17.30 - Verið velkomin

Lýsing

Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu vel skipulagða, bjarta og glæsilega 67,8 fermetra 3ja herbergja íbúð með 9,9 fermetra skjólsælum suðursvölum í nýlegu og vönduðu fjölbýlishúsi með lyftu við Grettisgötu í Reykjavík.  Stór hellulögð og afgirt sameiginleg lóð til suðurs.

Lýsing á hinni metnu eign:
Hér er um að ræða 3ja herbergja íbúð á 2. hæð hússins nr. 4 við Grettisgötu í Reykjavík að gólffleti 60,9 fermetrar auk 6,9 fermetra sérgeymslu í kjallara, samtals að birtu flatarmáli 67,8 fermetrar.
Tvær íbúðir eru á hverri hæð hússins.  Skjólsælar suðursvalir eru 9,9 fermetrar að stærð.

Nánari lýsing eignar:
Forstofa og hol, parketlagt og með fatahengi.
Barnaherbergi, parketlagt, með fataskápum.
Hjónaherbergi, parketlagt, með fataskápum og gólfsíðum gluggum.
Baðherbergi, rúmgott, flísalagt gólf og veggir, innrétting með kvartssteini á borðum, speglaskápur á vegg með lýsingu, flísalögð sturta með sturtuglerjum og gólfhalla, tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Stofa, parketlögð og björt með miklum gluggum til suðurs og útgengi á 9,9 fermetra skjólsælar suðursvalir.
Eldhús, opið við stofu, parketlagt og með fallegum ljósum sprautulökkuðum innréttingum á heilum vegg með kvartssteini á borði, vönduðum AEG tækjum, innbyggðri AEG uppþvottavél og innbyggðum AEG ísskáp með frystihólfi.

Gólfhitakerfi er í íbúðinni. Hurðir eru án gerefta.

Á jarðhæð hússins er sameiginleg hjólageymsla með útgengi út á stóra hellulagða baklóð, sem er sameiginleg með öðrum íbúðum hússins.
Í kjallara hússins er sér geymsla sem er 6,9 fermetrar, lakkað gólf og loftræsting. 

Húsið er steinsteypt fjölbýlishús á fimm hæðum, kjallari og fjórar hæðir, með lyftu og byggt árið 2018.
Húsið er einangrað að utan og klætt með í-múr kerfi, en á norðurhlið neðstu hæðar er flísalögn utan á múr. Gluggar eru ál/tré. Húsið er einn matshluti og er hlutfall íbúðar í matshluta 14,27%.

Ástand eignarinnar er gott, jafnt hið innra sem ytra, og sameign er öll mjög vel umgengin og í góðu ástandi

Lóðin er eignarlóð 253,8 fermetrar að stærð, frágengin og sameiginleg með öðrum eignarhlutum hússins. Stór hellulögð afgirt sameiginleg lóð er til suðurs. 
Fastanúmer íbúðar: F250-1309 01 0202. Landnr. L101820.

Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu fastmark@fastmark.is

Fasteignamarkaðurinn

Fasteignamarkaðurinn

Óðinsgötu 4, 101 Reykjavík
phone
Fasteignamarkaðurinn

Fasteignamarkaðurinn

Óðinsgötu 4, 101 Reykjavík
phone