Lýsing
Miklaborg kynnir:
Rúmgóð og björt 4ra herbergja, 152 fm endaíbúð á 3.hæð ásamt stórum yfirbyggðum svölum og stæði í lokaðri bílgeymslu
NÁNARI LÝSING: Komið inn í anddyri með skápum. Þaðan er gengið inn á gang. Rúmgott svefnherbergi með skápum er við ganginn. Hjónaherbergið er einnig rúmgott og með fataherbergi. Baðherbergið er með fallegri innréttingu, baðkari og sturtuklefa. Þriðja svefnherbergið er gott og er einnig með skápum. Af gangi er gengið inn í sjónvarpshol og þaðan í alrýmið. Eldhús er með fallegri spónlagðri eikarinnréttingu frá Brúnás, tengi fyrir uppþvottavél, eldunareyja og rými fyrir tvölfaldan ísskáp með klakavél og vatni. Inn af eldhúsi er gott þvottahús/búr. Eldhús er opið inn í bjarta stofu sem skiptist í borðstofu og stofu. Útgengt er á svalir í vestur úr stofunni og eru þær með svalalokun. Í kjallara er góð geymsla ásamt sér stæði í lokaðri bílgeymslu þar sem búið er að leggja fyrir hleðslustöð fyrir rafmagnsbíl. Sameignlegt þvottastæði fyrir bíla er í bílakjallaranum.
GÓLFEFNI: Fallegt harðparker er á öllum gólfum nema votrýmum en þar eru flísar.
Allar nánari upplýsingar veitir Ólafur Finnbogason löggiltur fasteignasali í síma 822 2307 eða olafur@miklaborg.is