Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1961
187,8 m²
6 herb.
2 baðherb.
4 svefnh.
Þvottahús
Bílskúr
Opið hús: 5. febrúar 2026
kl. 17:00
til 18:00
Opið hús: Sogavegur 122, 108 Reykjavík. Eignin verður sýnd fimmtudaginn 5. febrúar 2026 milli kl. 17:00 og kl. 18:00.
Lýsing
Eignamiðlun kynnir:
Eignamiðlun og Ólafur H. Guðgeirsson, MBA, LGFS., kynna rúmgott og mjög vel nýtt einsbýlishús á einni hæð við Sogaveg. Heildarstærð hússins samkvæmt fasteignamati er 187,8 fermetrar, þar af er bílskúr 36 fermetrar. Í húsinu eru í dag fjögur stór svefnherbergi og tvö baðherbergi, en hægt að skipta upp herbergjum. Lóðin er 482 fermetrar með stórum afgirtum slkjólgóðum sólpalli og heitum potti. Seljandi hefur áhuga á skiptum á rúmgóðri íbúð í hverfinu.Allar upplýsingar veitir Ólafur H. Guðgeirsson, MBA, lgfs., í síma 663-2508 eða olafur@eignamidlun.is sem einnig sýnir eignina.
Ekið er að húsinu eftir innkeyrslu frá Sogavegi. Innkeyrslan liggur að bílskúr hússins og einnig að fleiri húsum sem standa fjær götunni. Bílastæði er framan við bílskúr, en einnig eru yfirleitt næg bílastæði meðfram Sogavegi.
Gengið er inn um inngang á framhlið hússins sem snýr að Sogavegi, en einnig er hægt að fara inn gegnum bílskúrinn. Við aðalinngang er er komið inn í forstofu með flísum á gólfi og fatahengi. Þaðan er gengið í mjög rúmgott hol þar sem eldhús er til hægri, herbergi í framhaldi og baðherbergi við enda holsins. Holið er í dag nýtt sem borðstofa. Til vinstri við dyr úr forstofu inn í hol er gengið í rými þar sem er stórt herbergi með sér flísalögðu baði með sturtu lítilli innréttingu undir vaski, fínasta aðstaða fyrir ungling. Til vinstri úr holi er gengið niður eina tröppu í stofu og „garðstofu“ sem hefur verið tengd við húsið og er hluti stofunnar. Gluggar eru á allri hlið garðstofunnar, út að skjólgóðum afgirtum palli þar sem er pottur og fínasta grillaðstaða. Garðstofan, og stofan sem er opin til garðstofu, eru þess vegna mjög bjartar og vistlegar.
Í enda garðstofu eru dyr í bílskúrinn, sem er 36 fermetra byggður 1974. Skúrinn er flísalagður, með nýlegri hurð, aðstöðu fyrir þvottavélar, og rúmgóðu herbergi í innri enda. Úr enda garðstofu eru sömuleiðis dyr að megin baðherbergi hússins sem einnig má ganga í úr holi. Tvö rúmgóð herbergi eru í innri enda hols við hlið baðherbergis. Samkvæmt teikningu voru þrjú herbergi þarna og er þess vegna hægt að bæta við herbergi ef vilji er til. Baðherbergið er rúmgott, flísalagt með baðkari, innréttingum kringum vask og skápum.
Eldhús er rúmgott og bjart, í horni hússins með gluggum í tvær áttir, rúmgóðar viðarinnréttingar með steini á borðum, steinn á gólfi og búr í enda eldhússins. Gott vinnupláss og skápapláss, ásamt rými fyrir matarborð.
Parket er á flestum gólfum, nema í garðstofu eru sérlega fallegar rauðar leirflísar, flísar á baðherbergjum og bílskúr, og steinflísar á eldhúsi.
Húsið er timburhús, byggt upphaflega 1961 en bætt við það í nokkrum áföngum, klætt að utan með standandi borðaklæðningu. Húsið er ekki að öllu leiti í samræmi við samþykktar teikningar. Bílskúrinn er byggður 1974.
Frárennsli var myndað 2021, raflagnir yfirfarnar og gerðar afmarkaðar breytingar fyrir nokkru síðan. Þakkantur og þak langfært að hluta og málað 2023, gluggar málaðir á sama tíma. Skipt um hluta grindverks 2020, málað 2025. Múrviðgerðir á bílskúr við pottinn 2025 og viðgerð og sett Equitone plata sett í stað timburklæðningar á hluta veggjarins sem snýr út á pallinn. Tvö herbergi parketlögð 2025. Herbergi inn af bílskúr múrviðgert og málað 2025.
Vel skipulagt og vel nýtt einbýlishús ásamt bílskúr á einni hæð í einu af vinsælustu hverfum Reykjavíkur. Örstutt í alla þjónustu og stutt í útivist í Elliðaárdalnum og Fossvoginum.
Kostnaður kaupanda af kaupum:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er fyrir einstaklinga 0,8% af heildarfasteignamati eignar. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi fyrir lögaðila er 1,6% af heildarfasteignamati eignar.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, veðleyfi og mögulega fleiri skjölum - kr. 2.500 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kaupendasamningi.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Eignamiðlun fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Kaupanda er bent á að nýta sér þjónustu fagmanna við skoðun fasteigna, en mælt er með því að kaupendur fasteigna fái óháðan fagaðila til að framkvæma formlega ástandsskoðun á eignum sem gert er tilboð í.
Eignamiðlun fasteignasala | Grensásvegur 11 | 108 Reykjavík | Sími 588 9090 | www.eignamidlun.is
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
21. feb. 2014
78.600.000 kr.
50.000.000 kr.
187.8 m²
266.241 kr.
23. jan. 2015
47.050.000 kr.
48.700.000 kr.
187.8 m²
259.318 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026