Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Þórarinn Halldór Óðinsson
Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 2003
23,4 m²
2 herb.
1 baðherb.
1 svefnh.
Sérinngangur
Lýsing
Nes fasteignasala ehf kynnir eignina:
Fossatúnsland Birkilundur, 311 Borgarbyggð.
Um er að ræða lítinn sumarbústað samtals 24,4 fm. að stærð ásamt 4,4 fm geymsluskúr. Húsið stendur á 5.612 fm eignarlóð úr landi Fossatúns, sem er utan skipulagðrar frístundabyggðar. Vilyrði er fyrir allt að 250fmtr byggingarmagni að sögn seljanda, örstutt frá Höfuðborgarsvæðinu.
Nánari lýsing:
Sumarbústaðurinn hefur mikla möguleika og skiptist nú í seturými og svefnrými. Salerni er í viðbygginu með sérinngangi. Húsið er tengt við rafmagn og viðurkennd rotþró er innan lóðar. Rafmagnshitamottur eru undir gólfum. Vatnsból er á lóðarmörkum, það hefur ekki verið verið nýtt undanfarin ár en möguleiki er á að endurvekja.
Lóðin er vel í sveit sett skammt norðan við Lundarreykjadalsveg austan við brúna þegar komið er yfir Grímsá. Mikill trágróður er á lóðinni bæði á lóðamörkum og einnig er lóðinni skipt í tvennt með runnum og trjám. Gott útsýni er frá sumarbústaðnum.
Hér er um skemmtilega eignarlóð ræða sem býður upp á mikla möguleika fyrir þá sem vilja vera utan skipulagðra svæða með hús. Fossatún er miðsvæðis í Borgarfirði og því auðvelt að sækja afþreyingu til allra átta.
Möguleiki er á að nýtt færanlegt gróðurhús fylgi með í kaupum og öll húsgögn geta fylgt skv. nánar samkomulagi.
Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 eða 865-0350, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is.
Nes fasteignasala tekur ekki umsýslugjald af kaupendum.
Kostnaður kaupanda:
Stimpilgjald skv. 5. gr. laga nr. 138/2013 um stimpilgjald, 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga. 0,4% við fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald kr. 3.800,- á hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá.
Engin umsýsluþóknun.

Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
15. ágú. 2024
11.600.000 kr.
15.000.000 kr.
10101 m²
1.485 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026