Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Ingólfur Geir Gissurarson
Heiðar Friðjónsson
Snorri Snorrason
Óskar H. Bjarnasen
Snorri Björn Sturluson
Elín Alfreðsdóttir
Gylfi Þór Gylfason
Vista
svg

865

svg

598  Skoðendur

svg

Skráð  27. jan. 2026

fjölbýlishús

Grænamýri 24

170 Seltjarnarnes

105.000.000 kr.

942.549 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2226577

Fasteignamat

108.850.000 kr.

Brunabótamat

61.400.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1996
svg
111,4 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur

Lýsing

Valhöll kynnir: glæsilega fjögurra herbergja íbúð á jarðhæð í litlu fjölbýli með sérinngangi og stórum sólpalli á þessum rólega og vinsæla stað á Seltjarnarnesi. Þvottahús og geymsla innan íbúðar.

Nánari upplýsingar veitir Óskar H. Bjarnasen lögmaður og löggiltur fasteignasali í síma 691-1931 eða oskar@valholl.is


***Smelltu hér til að sjá myndband af eigninni***

Skv. fasteignayfirliti HMS er íbúðin skráð 111,4 fm.

Nánari lýsing:
Forstofa: komið er inn um sérinngang, í forstofu með flísum á gólfi og forstofu fataskáp. 
Alrými / Stofa og borðstofa: parket á gólfi, gengið út á skjólgóðar suðurverönd þaðan sem gengið er út í afgirtan garð.
Eldhús: með L-laga innréttingu, efri og neðri skápum og flísum á gólfi. Pláss fyrir tvöfaldan ísskáp. Góður borðkrókur við glugga.
Hjónaherbergi: Parket á gólfi og góðir fataskápar.
Svefnherbergi 2: Parket á gólfi og fataskápur.
Svefnherbergi 3: Er inn af stofu. Parket á gólfi og fataskápur.
Baðherbergi: flísalagt í hólf og gólf með fallegri innréttingu. Baðkar með upphengdri sturtu og góð innrétting í kringum handlaug einnig er handklæðaskápur við baðkarið. Gluggi er á baðherbergi.
Þvottahús: er innan íbúðar með góðu hilluplássi. Tengi fyrir skolvask.
Geymsla: er rúmgóð innan íbúðar.
Sameign: Sameiginleg köld geymsla er utan íbðúðar og er einnig sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er í húsinu.

Að sögn seljanda var skipt um þakklæðingu á húsinu fyrir um 3 árum síðan og skipt var um varmaskipti og þrýstijafnara fyri 2 árum.

Um er að ræða virkilega rúmgóða og bjarta íbúð í fallegu litlu fjórbýlishúsi á rólegum og eftirsóttum stað á Seltjarnarnesi þar sem stutt er í alla þjónustu og fallegar gönguleiðir.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á. 
Forsendur söluyfirlits:   
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

img
Óskar H. Bjarnasen
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Valhöll fasteignasala
Síðumúla 27, 108 Reykjavík
Valhöll fasteignasala

Valhöll fasteignasala

Síðumúla 27, 108 Reykjavík
phone
img

Óskar H. Bjarnasen

Síðumúla 27, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
6. feb. 2019
54.900.000 kr.
60.000.000 kr.
111.4 m²
538.600 kr.
7. jún. 2016
38.550.000 kr.
52.500.000 kr.
111.4 m²
471.275 kr.
20. feb. 2012
30.900.000 kr.
33.200.000 kr.
111.4 m²
298.025 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Valhöll fasteignasala

Valhöll fasteignasala

Síðumúla 27, 108 Reykjavík
phone

Óskar H. Bjarnasen

Síðumúla 27, 108 Reykjavík