Lýsing
Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 74,7fm. og þar af er geymsla 7,1fm. Bílastæði er ekki inn í fermetratölu íbúðarinnar.
Nánar um eignina:
Gengið er upp tvær hæðir og inn um sér inngang.
Forstofa með góðu skápaplássi og flísum á gólfi.
Stofa opin og björt með parketi á gólfi. Útgengt er út á suður svalir (14,1fm.) úr stofunni með fallegu útsýni.
Eldhús er opið við stofu, góð innrétting, tengi fyrir uppþvottavél, spanhelluborð, gufugleypir, ofn í vinnuhæð, gert er ráð fyrir ísskáp í innréttingunni og parket á gólfi. Árið 2022 var ofn, helluborð, vaskur og blöndunartæki endurnýjuð.
Hjónaherbergi með góðu skápaplássi og parketi á gólfi.
Barnaherbergi með fataskáp og parketi á gólfi.
Baðherbergi með rúmgóðri sturtu, upphengdu salerni, nýlegri innréttingu, nýlegum vaski og blöndunartækjum, handklæðaofni og flísalagt í hólf og gólf. Innangengt er í þvottahúsið inn af baðherberginu.
Þvottahús er með nýlegri innréttingu og flísar á gólfi.
Nýir gluggar og svalahurð í stofu og hjónaherbergi.
Geymsla íbúðar er í kjallara hússins.
Stæði í bílakjallara með hleðslustöð og sameiginleg þvottaaðstaða.
Á jarðhæð er hjólageymsla stigagangsins með góðu aðgengi.
Einstaklega falleg eign á frábærum stað þar sem stutt er í náttúruna auk allrar þjónustu, skóla og leikskóla.
Allar nánari upplýsingar veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 899-5949 eða á netfaningu gudbjorg@trausti.is
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.