Lýsing
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Falleg og mikið endurnýjuð 3ja herbergja íbúð á 2.hæð við Hraunbæ 170. Eignin er skráð 88,9 m2 en þar af íbúð 84,1 m2 og geymsla 4,8 m2. Eignin skiptist í forstofu, hol, eldhús, stofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi og geymslu. Frábær eign á eftirsóttum stað í Reykjavík í göngufæri við alla helstu þjónustu. Meðal annars skóla, leikskóla, líkamsræktarstöð, sundlaug og verslanir.
Skv. upplýsingum frá seljanda og húsfélaginu hefur eignin fengið talsverðar endurbætur:
Íbúðin: Árið 2024-2025 var sett nýtt parket, gólflistar og undirlag. Innrétting færð til í eldhúsi og sett ný borðplata, blöndunartæki og höldur. Nýir skápar á gang og í svefnherbergi. Nýjar innihurðar og hurðarkarmar. Skipt um rofa og innstungur. Allt málað, bæði veggir og loft. Af fyrri eiganda var: Baðherbergi hafði verið tekið í gegn. Flísalagt, nýtt baðkar, klósett og innrétting. Sett upp tengi fyrir þvottavél og settur upp handklæðaofn. Rafmagnstafla í íbúð endurnýjuð. Nýr gluggi og gler í hjónaherbergi árið 2021.
Húsið: Húsið að utan var viðgert og málað árið 2020 og svalagólf múrað og lagfært. Árið 2012 var skipt um þakjárn á húsinu, þakrennur og niðurföll og er það í góðu ástandi.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.
Nánari lýsing:
Gangur er með parketi á gólfi og fataskáp.
Eldhús með fallegri viðar innréttingu með efri og neðri skápum. Í innréttingu er eldavél, vaskur og vifta. Gert er ráð fyrir uppþvottavél og ísskáp í innréttingu. Góður borðkrókur við glugga.
Stofan er rúmgóð og björt með parketi á gólfi. Úr stofu er gengið út á svalir í suðurvesturátt.
Svefnherbergi nr. 1 er með fataskápum og parketi á gólfi.
Svefnherbergi nr. 2 er með parketi á gólfi.
Baðherbergið er með innréttingu, vegghengdu salerni, handklæðaofni og baðkari með sturtu aðstöðu. Opnanlegur gluggi. Tengi er fyrir þvottavél og þurrkara. Flísar á gólfi og veggjum.
Sérgeymsla er í sameign. Er skráð 4,8 m2.
Eigninni fylgir hlutdeild að sameiginlegri þvottahús, hjóla- og vagnageymslu. Stór sameiginlegur garður með leiktækjum. Búið er að setja upp sameiginlegar hleðslustöðvar fyrir rafmagnsbíla á lóð.
Verð kr. 64.900.000,-
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.