Lýsing
Nánari lýsing:
Anddyri: flísar á gólfi, fataskápur aukin lofthæð. innangengt í þvottahús og þaðan í bílskúr.
Þvottahús: flísar á gólfi, gluggi með opnanlegu fagi og innangengt í bílskúr.
Sjónvarpsherbergi: rúmgott og bjart með glugga, flísar á gólfi, aukin lofthæð.
Eldhús: opið inn í stofu, falleg innrétting með góðu skápaplássi, gaseldavél með 6 brennurum og ofni undir. Góð vinnuaðstaða, aukin lofthæð, flísar á gólfi og stór gluggi.
Stofa / borðstofa: rúmgóð og björt með aukinni lofthæð, flísar á gólfi og gluggar á þrjá vegu. Frá borðstofu er útgengt á skjólgóðan pall sem er fyrir framan hús.
Hjónaherbergi: er rúmgott með stórum fataskápum, aukin lofthæð og ófrágengnu gólfi.
Barnaherbergi: eru tvö, bæði með ófrágengnu gólfi, fataskápur er í öðru herberginu.
Baðherbergi: flísalagt í hólf og gólf, falleg innrétting með handlaug, stórt hornbaðkar með sturtu, vegghengdt wc og risa spegill.
Bílskúr: flísalagður með innkeyrsluhurð, yfir hluta bílskúrs er geymsluloft. Gluggi með opnanlegu fagi og útgengi á bílastæði. Góður vinnukrókur með glugga og opnanlegu fagi,útgengi á bílastæði.
Bílaplan: afar rúmgott, hellulagt og með hitalögn.
Garður / lóð: Fallegur pallur er fyrir framan hús sem er lokaður milli húsa þar er útsýni til vesturs. Heitur pottur, flott opið grillhús með pizzaofni, bar og borðaðstöðu. Hobbýskúr sem lokar pallinn af. Möguleiki að fara á pallinn við innganginn. Falleg náttúra er í kringum húsið, lítið viðhald, útsýni.
Samkvæmt seljanda: mæla með að skoða vel þar sem þau vita lítið um eignina þetta er dánarbú. Gluggar og hurð þurfa viðhald.
Nánari upplýsingar veita:
Díana Arnfjörð s.895 9989 Löggiltur fasteignasali
Hulda Ósk s.771 2528 Löggiltur fasteignasali
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
www.fastgardur.is | Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður