Lýsing
Um er að ræða 217,3 m2 endaraðhús með 5 svefnherbergjum ásamt bílskúr á góðum stað í Grafarholti þar sem stutt er í alla þjónustu. Góð aðkoma er að húsinu.
Allar nánari upplýsingar veitir Þorbjörn Geir Ólafsson lgfs í síma 895-598 eða á tölvupóstfanginu bjossi@trausti.is.
Nánari lýsing eignarinnar:
Neðri hæð:
Komið er inn í flísalagða forstofu með skáp. Á vinstri hönd er gengið inn í snyrtilegan bílskúr. Inn af forstofu er gengið inn í stofu/borðstofu þar sem útgengt er út á fallega verönd. Parket á gólfum. Eldhúsið er með góðri innréttingu og flísum á gólfi. Á hæðinni er lítið gesta salerni sem og rúmgott þvottahús með góðri vinnuaðstöðu. Þaðan er útgengt í garðinn. Hiti er í gólfum.
Efri hæð:
Gengið er upp parektlagðan stiga og komið upp í bjart hol/setustofu þar sem stórir gluggar taka á móti og hátt er til lofts. Eftri hæðin hefur að geyma 5 rúmgóð herbergi, öll björt og falleg og með aukinni lofthæð. Úr einu þeirra er útgengt út á suðursvalir. Á hæðinni er einnig rúmgott baðherbergi með stóru baðkari og ágætri sturtu. Parket er á allri hæðinni fyrir utan baðherbergi sem er flísalagt í hólf og gólf.
Hér er um að ræða virkilega skemmtilega og vel staðsetta eign á besta stað í Grafarholti þar sem stutt er í alla þjónustu sbr. skóla og leikskóla. Fallegar gönguleiðir eru í nágrenninu og stutt í fallega náttúruna.
Húsið hefur fengið gott almennt viðhald í gegnum tíðina.
Nánari upplýsingar veitir Þorbjörn Geir Ólafsson Löggiltur fasteignasali, í síma 895-5198, tölvupóstur bjossi@trausti.is.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.