Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hafdís Rafnsdóttir
Dórothea E. Jóhannsdóttir
Sigurður Gunnlaugsson
Jón Gunnar Gíslason
Hafliði Halldórsson
Aðalsteinn Bjarnason
Margrét Rós Einarsdóttir
Guðný Ösp Ragnarsdóttir
Elka Guðmundsdóttir
Vista
parhús

Kjarrmóar 23

210 Garðabær

82.900.000 kr.

977.594 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2071033

Fasteignamat

84.400.000 kr.

Brunabótamat

49.550.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1982
svg
84,8 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Sérinngangur
Opið hús: 4. febrúar 2026 kl. 17:00 til 17:30

Opið hús: Kjarrmóar 23, 210 Garðabær. Eignin verður sýnd miðvikudaginn 4. febrúar 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.

Lýsing

Fasteignasalan TORG kynnir:  Fallegt og vel viðhaldið parhús á tveimur hæðum á eftirsóttum stað við Kjarrmóa 23 í Garðabæ.
Um er að ræða eign sem er skráð skv fmr 84,8fm en gólfflötur eignarinnar er mun stærri þar sem hluti efri hæðar er undir súð. Mjög skjólríkur suðurgarður og aflokuð verönd með skjólveggjum. Bílskúrsréttur fylgir eigninni og útigeymsla er við húsið. Hér er um einstaklega smekklegt sérbýli að ræða í rótgrónu og barnvænu hverfi. Stutt er í alla þjónustu, verslun, skóla, leikskóla, íþróttahús og sundlaug og aðra nauðsynlega þjónustu. *Fasteignamat árið 2026 er 84.400.000*
Allar nánari upplýsingar veitir: Hafdís Rafnsdóttir löggiltur fasteignasali gsm 820-2222 eða hafdis@fstorg.is

Nánari lýsing: Neðri hæð skiptist í Forstofu, hol, eldhús, stofu, baðherbergi og svefnherbergi. Efri hæð er skipt niður í tvö herbergi, annað er gluggalaust og gengið er í gegn um það til að komast í hitt.
Forstofa: komið er inn í forstofu með flísum á gólfi og fataskáp.
Hol: frá forstofu er komið inná hol sem leiðir inn í önnur rými eignarinnar.
Eldhús: eldhúsið er með ljósri innréttingu með dökkri borðplötu. Bakaraofninn er í vinnuhæð, uppþvottavél er innbyggð og keramikhelluborð. Parket er á gólfi og gluggi er á eldhúsinu.
Stofa: Stofan er samliggjandi eldhúsi og borðstofu. Parket er á gólfi, stórir gluggar og útgengt út á aflokaða skjólgóða suðurverönd með skjólveggjum.
Svefnherbergi:  Svefnherbergið er rúmgott með parketi á gólfi og fataskáp sem settur var nýr 2020.
Baðherbergi: Baðherbergi er flísalagt í hólfog gólf. Opnanlegur gluggi og baðkar með sturtuaðstöðu. Árið 2020 var skipt um salerni, vaskinn sem er stór og með 2 blöndunartækjum og innréttingu. Tengi er fyrir þvottavél og þurrkara á baðherbergi.
Efri hæð: Gengið er upp fallegan parketlagðan stiga upp á efri hæð.
Svefnherbergi: Á efri hæð er stórt rými með meiri lofthæð og að hluta til undir súð, búið er að skipta þessu rými upp í tvö svefnherbergi bæði með parketi á gólfi.
Geymsla: Góð geymsla er undir súð á efri hæð og einnig er útiskúr sem fylgir eigninni.
Gólfefni: Massíft niðurlímt eikarpaket og flísar.

Niðurlag: Þetta er virkilega fallegt og gott sérbýli á besta stað í Garðabæ þar sem staðsetning er mjög góð í rólegu og barnvænu hverfi en stutt í alla þjónustu. Góð bílastæði
Sjón er sögu ríkari. Allar nánari upplýsingar veitir: Hafdís Rafnsdóttir löggiltur fasteignasali gsm 820-2222 eða hafdis@fstorg.is

img
Hafdís Rafnsdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Fasteignasalan TORG
Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone
img

Hafdís Rafnsdóttir

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
19. feb. 2020
44.350.000 kr.
50.500.000 kr.
84.8 m²
595.519 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone

Hafdís Rafnsdóttir

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ