Opið hús: Vegghamrar 3, 112 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 01 02. Eignin verður sýnd fimmtudaginn 5. febrúar 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.
Lýsing
Nánari lýsing eignar:
Gengið er inn í snyrtilega og bjarta forstofu með svörtum flísum á gólfi og fatahengi.
Eldhúsið er með fallegri hvítri innréttingu og svörtum flísum á milli skápa, parket á gólfi
Stofa og borðstofa eru rúmgóðar og bjartar og útgengt er út á stóra og skjólgóða verönd frá stofunni.
Svefnherbergi hjóna er rúmgott með góðum skápum og parketi á gólfi
Barnaherbergi er rúmgott og með parketi á gólfi.
Baðherbergi er með baðkari með sturtuaðstöðu, hvítum flísum á gólfi og einum vegg og tengi fyrir þvottavél.
Möguleiki er að bæta við einu herbergi ef það þarf.
Fjölbýlið er vel staðsett í barnvænu og vinsælu hverfi í Grafarvogi. Stutt er í skólann og í lítinn verslunarkjarna í Foldahverfi.
Allar nánari upplýsingar veita Hallgrimur Hólmsteinsson löggiltur fasteignasali í síma 896-6020 eða með tölvupósti á hallgrimur@trausti.is eða Kristján Baldursson löggiltur fasteignasali með tölvupósti á kristjan@trausti.is
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.