Opið hús: Stórholt 14, 105 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 01 01. Eignin verður sýnd miðvikudaginn 4. febrúar 2026 milli kl. 17:00 og kl. 18:00.
Lýsing
Helgafell fasteignasala kynnir þriggja til fjögurra herbergja íbúð á fyrstu hæð.
Í kjallara er rúmgóð geymsla (herbergi) með ÚTLEIGUMÖGULEIKA.
Húsið var byggt árið 1947. Merkt matseining hjá HMS er 01-0101.
Birt stærð eignar er skráð 80,6 fm.
ÝTTU HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT OG FLEIRI GÖGN
Komið er inn í sameign þar sem innangengt er í kjallara.
Parketlagt anddyri/gangur með fatahengi.
Björt parketlögð stofa er opin við eldhús. Flísalagt eldhús með borðkrók, nýlegri innréttingu, efri og neðri skápum, eyju og span helluborði.
Innfelld lýsing undir efri skápum. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél fylgja með.
Flísalagt baðherbergi með sturta og opnanlegum glugga.
Tvö parketlögð svefnherbergi. Hjónaherbergi er með góðum fataskáp.
Í kjallara er rúmgott 16,7 fm. herbergi (skráð sem geymsla) með útleigumöguleika, opnanlegum glugga og aðgengi að 3,7 fm.baðherbergi (skráð sem geymsla). Er í útleigu í dag.
Sameiginlegt þvottahús er með sturtuaðstöðu, opnanlegum glugga og máluðu gólfi.
Í sameiginlegum garði er sólpallur til suðurs.
Falleg eign á eftirsóttum stað í miðborg Reykjavíkur.
Nánari upplýsingar veita:
Knútur Bjarnason, löggiltur fasteignasali, s: 775-5800 / knutur@helgafellfasteignasala.is
Kristján Þór Sveinsson, löggiltur fasteignasali, s: 898-6822 / kristjan@helgafellfasteignasala.is
----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells
- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr. 92.380,- m/vsk.
Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.