Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Guðmundur Th Jónsson
Elín D. Guðmundsdóttir
Sigríður Kjartansdóttir
Vista
fjölbýlishús

Öldugrandi 15

107 Reykjavík

59.500.000 kr.

998.322 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2023955

Fasteignamat

60.750.000 kr.

Brunabótamat

37.950.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1986
svg
59,6 m²
svg
2 herb.
svg
1 baðherb.
svg
1 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur

Lýsing

Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu virkilega fallega, bjarta og vel skipulagða 59,6 fermetra 2ja herbergja íbúð á 2. hæð með rúmgóðum suðvestur svöllum í mjög góðu 5 íbúða fjölbýlishúsi á þessum eftirsótta stað við Öldugranda í Reykjavík.

Endurbætur: 
- Þakjárn, þakkantur og þakgluggi í sameign endurnýjað 2021
- Drenlagnir í kringum húsið voru endurnýjaðar árið 2022 og á sama tíma settur nýr brunnur í lóð
- Snjóbræðslukerfi í stétt yfirfarið 2022
- Svalahurð endurnýjuð árið 2020 og skipt um gler að hluta í stofu
- Gólf á svölum er nýlega endurnýjað
- Stigahús er nýlega teppalagt og málað og lítur mjög vel út


Lýsing eignar:
Forstofa / hol, parketlagt og með fatahengi.
Stofa, parketlögð, björt og rúmgóð með gluggum í suðaustur og suðvestur og með útgengi á skjólsælar svalir til suðurs.
Eldhús, opið við stofu og hol, parketlagt og bjart með gluggum til suðausturs. Hvítar + beykiinnréttingar eru í eldhúsi.
Herbergi, parketlagt og rúmgott með fataskápum á heilum vegg.
Baðherbergi, með glugga, flísalagt gólf og veggir, baðkar með sturtuaðstöðu, innrétting og skápar. 

Í jarðhæð hússins eru:
Sérgeymsla, sem er 4,5 fermetrar að stærð.
Sameiginlegt þvottaherbergi, mjög snyrtilegt, rúmgott og með gluggum til norðurs. Sameiginlegar vélar eru í þvottaherbergi.
Sameiginleg hjólageymsla, með útgengi á lóð.

Sameign hússins er öll mjög snyrtileg og vel umgengin, nýlega teppalögð og máluð.

Húsið að utan lítur vel út.  Þakjárn, þakkantur, þakrennur og niðurföll eru nýlega endurnýjuð.

Lóðin, sem er sameiginleg með húsunum nr. 11-15 við Öldugranda er tyrfð og hellulögð og lítur vel út.  Góð aðkoma er að húsinu og næg bílastæði.

Staðsetning eignarinnar er virkilega góð á eftirsóttum stað þaðan sem stutt er í leikskóla, skóla, verslanir, þjónustu, sundlaug og fallegar gönguleiðir.

Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu fastmark@fastmark.is

Fasteignamarkaðurinn

Fasteignamarkaðurinn

Óðinsgötu 4, 101 Reykjavík
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
30. ágú. 2016
22.200.000 kr.
30.000.000 kr.
55.1 m²
544.465 kr.
9. des. 2011
14.200.000 kr.
16.500.000 kr.
55.1 m²
299.456 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Fasteignamarkaðurinn

Fasteignamarkaðurinn

Óðinsgötu 4, 101 Reykjavík
phone