Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Kristján Baldursson
Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir
Sólveig Regína Biard
Kristín María Stefánsdóttir
Viktoría Rannveig Larsen
Aðalsteinn Jón Bergdal
Hallgrímur Óli Hólmsteinsson
Vista
fjölbýlishús

Álftamýri 56

108 Reykjavík

74.900.000 kr.

564.431 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2014328

Fasteignamat

83.300.000 kr.

Brunabótamat

58.490.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1963
svg
132,7 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Útsýni
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Laus strax
Opið hús: 4. febrúar 2026 kl. 17:00 til 17:30

Opið hús: Álftamýri 56, 108 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 04 05. Eignin verður sýnd miðvikudaginn 4. febrúar 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.

Lýsing

Trausti fasteignasala kynnir í einkasölu bjarta og vel skipulagða 4ra herbergja íbúð á 4. og efstu hæð í góðu fjölbýli miðsvæðis í Reykjavík að Álftamýri 56. Nýtt fallegt 14 mm Swiss krono parket frá Birgisson flæðandi á gólfum. Nýr ofn, helluborð og blöndunartæki í eldhúsi. Lagnir á baði ný yfirfarnar og lagaðar. Einstaklega fallegt útsýni og svalir í suður.  Björt og falleg eign miðsvæðis í Reykjavík og stutt í mennta-, grunn- og leikskóla, íþróttasvæði og hús sem og alla þjónustu. Kringlan hinum megin götunnar og Öskjuhlíðin í göngufæri. Eignin er laus við kaupsamning.

Smelltu hér til að sækja söluyfirlit.
Fáðu frítt söluverðmat fyrir þína eign.
Samkvæmt HMS er eignin skráð 132,7 fm og þar af er bílskúr 23,1 fm og geymsla íbúðar 10,7 fm.

Nánari lýsing:
Forstofuhol
er rúmgott með parket á gólfi og góðan yfirhafna- og skóskáp.
Stofa/borðstofa mjög björt og rúmgóð með stórum gluggum og þar af einn gólfsíður svo birtan er skemmtileg og útsýnið nýtur sín vel. Útgengt á suður svalir og frábært útsýni yfir borgina upp til fjalla.
Eldhús með snyrtilegri innréttingu, nýr ofn, helluborð, vaskur og blöndunartæki. Góður borðkrókur. Einnig er tengi fyrir uppþvottavél og þvottavél í eldhúsi.
Gangur frá holi að baðherbergi og svefnherbergjum.
Hjónaherbergi er mjög rúmgott með "walk-in" fataherbergi.
Svefnherbergi II er rúmgott.
Svefnherbergi III með innbyggðum skáp.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með snyrtilegri innréttingu, baðkari með sturtu og upphengdu salerni.
Geymsla við hol.

Sérgeymsla íbúðar í sameign í kjallara hússins.
Sameiginlegt þvottahús þar sem hver er með sitt tengi.
Hjóla- og vagnageymsla í sameign í kjallara.

Nánari upplýsingar um eignina veita Aðalsteinn Jón Bergdal, löggiltur fasteignasali, í síma 767-0777 eða á netfanginu alli@trausti.is og Kristján Baldursson, löggiltur fasteignasali, í síma 867-3040 eða á netfanginu kristjan@trausti.is

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

img
Kristján Baldursson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Trausti fasteignasala
Vegmúla 4, 108 Reykjavík
Trausti fasteignasala

Trausti fasteignasala

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
phone
img

Kristján Baldursson

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
Trausti fasteignasala

Trausti fasteignasala

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
phone

Kristján Baldursson

Vegmúla 4, 108 Reykjavík