Opið hús: Laugateigur 6, 105 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 00 01. Eignin verður sýnd sunnudaginn 8. febrúar 2026 milli kl. 14:00 og kl. 14:30.
Lýsing
Nánari lýsing:
Anddyri: Flotað gólf
Rúmgott hol með fatahengi, flotað gólf.
Eldhús: Falleg sérsmíðuð innrétting frá 2019, dregið var fyrir nýtt rafmagn þar sem eldhús var fært um herbergi og úr eldhúsi var opnað inn í annað herbergi sem myndar stórt alrými fyrir eldhús og stofu. Sérsmíðuð hirlsa á milli herbergja. Flotað gólf. Gengið út í suðurgarð frá nýlegri tvöfaldri svalahurð úr stofu.
Herbergi I: Flotað gólf
Herbergi II: Parket á gólfi, nýlegur gluggi
Baðherbergi: Skipt var um handlaug og innréttingu 2019. Sturtuklefi og salerni endurnýjað 2015. Flísar á vegg að hluta. Flotað gólf
Geymsla: er í sameiginlegu rými, steypt gólf. 5 fm. Einnig er geymsluskápur á gangi sem er í eigu íbúðarinnar,
Sameiginlegt þvottahús er á sömu hæð.
Húsið hefur fengið mjög gott viðhald síðustu árin og það er sterkt og gott húsfélag.
Viðhaldssaga hússins:
2009: Nýtt járn sett á þak
2009: Drenað
2011: Ný rafmagnstafla
2015: Húsið steinað
2015: Nýr gluggi á barnaherbergi
2023: Ný tvöföld svalahurð þar sem áður var gluggi
Frábær eign á þessum eftirsótta stað, innarlega í botnlanga. Stutt er í alla helstu þjónustu og verslun.
Eignin Laugateigur 6 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 201-9196, birt stærð 75.1 fm.
Nánari upplýsingar veitir Dagrún Davíðsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 866-1763, tölvupóstur: dagrun@betristofan.is.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.