Opið hús: Vallakór 6B, 203 Kópavogur, Íbúð merkt: 02 05 02. Eignin verður sýnd mánudaginn 9. febrúar frá kl 17:00 - 17:30.
Lýsing
Nánar tiltekið eign merkt 05-02, fastanúmer 235-4739 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi stærð íbúðar 120,8 fm. Eigninni tilheyrir geymsla (0068) birt stærð 6,2 fm og yfirbyggðar rúmgóðar svalir, stærð 21,1 fm.
*Smelltu hér til að skoða myndband um eignina*
*Smelltu hér til að sækja söluyfirlit*
- Tvö sérmerkt bílastæði í bílakjallara
- Lyfta í húsi
- Rúmgóðar yfirbyggðar svalir með góðu útsýni
- Hjónaherbergi með fataherbergi
- Góð staðsetning
Eignin skiptist í: Forstofu, stofu og eldhús í alrými, hjónaherbergi með fataherbergi innaf, tvö barnaherbergi, baðherbergi með tengi fyrir þvottavél, stórar yfirbyggðar svalir.
Nánari lýsing:
Forstofa: Rúmgóð forstofa, mjög gott skápapláss, flísar á gólfi.
Stofa/borðstofa: Stofa og eldhús eru saman í rúmgóðu alrými, stofan er björt og með útgengt út á stórar svalir sem eru yfirbyggðar, parket á gólfi.
Eldhús: Með hvítri HTH innréttingu, gott skápapláss, eyja er límd við og því hægt að fjarlægja eða færa, parket á gólfi.
Hjónaherbergi: Með fataherbergi innaf, útgengt út á stórar yfirbyggðar svalir, parket á gólfi.
Svefnherbergi 1: Rúmgott, með fataskáp og parket á gólfi.
Svefnherbergi 2: Rúmgott, með fataskáp og parket á gólfi.
Baðherbergi: Með hvítri HTH innréttingu, gott skápapláss. Flísalagt með sturtu, vegghengdu salerni, tengi fyrir þvottavél og þurrkara, handklæðaofn.
Svalir: Stórar og yfirbyggðar með svaladyrum bæði í stofu og hjónaherbergi.
Geymsla: Innan sameignar, 6,2 fm
Bílastæði: Tvö bílastæði merkt B77 og B78 í bílageymslu, hægt að hlaða rafbíl í gegnum 32amp tengil á vegg, í bílageymslu er einnig þvottastæði.
Hjóla- og vagnageymsla: Sameiginleg innan sameignar.
Nánari upplýsingar veita:
Hallveig Jónsdóttir, Nemi í löggildingu, í síma 699-0496, netfang hallveig@stofnfasteignasala.is
Benedikt Ólafsson, Löggiltur fasteignasali, í síma 661-7788, netfang bo@stofnfasteignasala.is
Við hjá STOFN Fasteignasölu setjum þig í fyrsta sætið – með heilindum, metnaði og persónulegri þjónustu.
Það er okkur sannur heiður að fá að vera fasteignasalinn þinn.
STOFN Fasteignasala – Setjum þig í fyrsta sætið.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. STOFN Fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.